Salka í 9 sæti á NM ungmenna í Svíþjóð og með Íslandsmet

Salka Þórhallsdóttir í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi endaði í 9 sæti í liðakeppni og 17 sæti í einstaklingskeppni og sló U15 Íslandsmetið á Norðurlandameistaramóti ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.

Salka var í 25 sæti í undankeppni mótsins í sveigboga U16 kvenna. Salka mætti í 32 manna úrslitum Evu Krístin Sólmundsdóttir liðsfélaga sínum í mjög jöfnum og spennandi leik. Eva tók fyrstu tvær loturnar og 4-0 forskot í leiknum, en Salka svaraði með því að taka lotu 3 og 4 og jafna leikinn 4-4 og aðeins ein lota eftir. Þar tók Eva þó sigurinn í lotunni 21-14 og því sigurinn í leiknum 6-4. Eva hélt því í 16 manna úrslitaleikina og Salka endaði í 17 sæti í einstaklingskeppni á NM ungmenna.

Í liðakeppni léku Salka og liðsfélagar, Emma Rakel Björnsdóttir og Eva Kristín Sólmundsdóttir, í liði Íslands gegn liði Noregs í 16 liða úrslitum. Þar tók Norðmenn sigurinn í leiknum 6-0, slógu Ísland út og Salka og liðsfélagar enduðu því í 9 sæti í liðakeppni á NUM.

Niðurstöður af NM ungmenna 2025:

  • Salka Þórhallsdóttir – 17 sæti – sveigboga U16 kvenna – BFB
  • Salka Þórhallsdóttir – 9 sæti – Sveigboga U16 lið (Ísland)
  • Salka Þórhallsdóttir – sveigbogi U15 kvenna (WA) – 344 stig – Metið var áður 327

Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan

Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons