Sævar Sindri Jóhannesson á 8 sæti á NM ungmenna

Sævar Sindri Jóhannesson í Bogfimifélaginu Hróa Hetti í Hafnarfirði keppti á NM ungmenna utandyra (NUM) í Óðinsvé Danmörku 3-7 júlí.

Í einstaklingskeppni MM var Sævar sleginn út af Samuel Emil Frederiksen frá Danmörku í 16 manna úrslitum og Sævar endaði því í 9 sæti á NM í einstaklingskeppni. Í liðakeppni var lið Sævars slegið út af Danmörku í 8 liða úrslitum og Sævar ásamt liðsfélaga sínum enduðu því í 8 sæti.

Samantekt af niðurstöðum Sævars á NUM:

  • 8 sæti trissuboga U16 liðakeppni á NM ungmenna
  • 9 sæti trissuboga karla U16 einstaklingskeppni á NM ungmenna

Frekari upplýsingar um mótin er hægt að finna í fréttum Bogfimisambands Ísland hér:

Frábært gengi Íslands á NM ungmenna í bogfimi um helgina með 5 Norðurlandameistara, 5 Norðurlandamet o.fl.