Ragnar Þór Íslandsmeistari karla þriðja árið í röð

Ragnar Þór Hafsteinsson úr BFB Kópavogi vann sinn þriðja Íslandsmeistaratitil innandyra í röð á Íslandsmeistaramótinu í Ólympískum sveigboga í Bogfimisetrinu um helgina.

Íslandsmeistaratitill karla: Ragnar tryggir sér þriðja Íslandsmeistaratitilinn í röð í úrslitaleik gegn sterkum nýliða.

Um Íslandsmeistaratitil karla áttust við Finnur Arnór Þórisson úr BFHH Hafnarfirði sem hafði komist óvænt í gull úrslitaleikinn og þaulreyndur Ragnar Þór Hafsteinsson úr BFB. Finnur tók fyrstu lotuna 26-24 og því 2-0 forystu í leiknum. Ragnar tók aðra lotu 26-21 og jafnaði leikinn 2-2. Drengirnir jöfnuðu þriðju lotuna 27-27 og staðan því enn jöfn í leiknum 3-3, og þeir jöfnuðu svo aftur fjórðu lotu 24-24 og staðan 4-4 í leiknum og aðeins fimmta og loka lota leiksins eftir. Ragnar náði þar 29-24 sigri í loka lotunni og tók því 2 stigin og vann úrslitaleikinn 6-4, þó að ekki hefði mátt muna miklu á að leikurinn færi í vil nýliðans.

Ragnar vann því sinn þriðja Íslandsmeistaratitil innandyra í röð (2024, 2025 og 2026).

Baldur Freyr Árnason tók bronsið í karla á móti Jóhann Baldur Jóhannsson 7-3 báðir úr BFB.

Íslandsmeistaratitill sveigboga: Bæði gull og brons úrslit enda í bráðabana og því ein lokaör sem ákvarðaði sigurvegarana.

Um Íslandsmeistaratitilinn (óháð kyni), “the main event” þar sem að allir Íslendingar keppa, konur, karlar og allir, voru gífurlega spennandi og líka óvæntar niðurstöður.

Ragnar Þór Hafsteinsson úr BFB komst í gull úrslitaleikinn nokkuð örugglega þó að Baldur Freyr Árnason hafi veitt honum góða mótspyrnu í undanúrslitum þar sem Ragnar tók 6-4 sigur í síðustu lotu leiksins og hélt því í gull úrslitin.

Gull úrslitaleikurinn á milli Önnu og Ragnars var ekki minna spennandi. Ragnar vann fyrstu lotuna 27-26 og tók því 2-0 forskot í leiknum um titilinn. Anna vann aðra lotu 27-23 og jafnaði leikinn 2-2. Ragnar tók þriðju lotu 27-25 og staðan 4-2. Þau jöfnuðu fjórðu lotu 27-27 og staðan 5-3 og aðeins ein lota eftir af leiknum. Anna varð að vinna síðustu lotuna til að jafna leikinn 5-5 og knýja fram bráðabana um titilinn, sem hún náði með 27-21 lotu og jafnaði því leikinn 5-5. Ein ör í bráðabana og sá sem hittir næst miðju myndi því ákvarða Íslandsmeistara allra 2026. Ragnar skaut 9 og Anna skaut 10 og tók því Íslandsmeistaratitil allra ásamt því að taka sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki á ferlinum. Ragnar þurfti því að sætta sig við silfrið um Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni.

Brons leikurinn var ekki minna jafn og spennandi en þar mættust Marín Aníta Hilmarsdóttir og Baldur Freyr Árnason bæði Kópavogsmenn úr BFB. Þau jöfnuðu fyrstu lotu 26-26 og staðan því 1-1. Þau skiptust svo á að vinna loturnar alltaf með littlum mun og brons leikurinn endaði einnig í jafntefli 5-5 og því þurfti einnig bráðabana til að ákvarða brons verðlaunahafann. Þar tók verjandi Íslandsmeistari Marín þó sigurinn með 10 á móti 6 frá Baldri og Marín tók því bronsið.

Ragnar vann einnig brons í félagsliðakeppni á ÍM og Ragnar kom því heim með heilt sett, 1 gull, 1 silfur og 1 brons.

Nánari upplýsingar um árangur Ragnars og almennt um Íslandsmeistaramótið er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands með því að smella hér fyrir neðan

Íslandsmeistaramót sveigboga Anna Guðrún tekur óvæntan sigur og sinn fyrsta titil í meistaraflokki