Ragnar Þór í 9 sæti á sínu fyrsta EM

Ragnar Þór Hafsteinsson úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti í bogfimi innandyra í vikunni í Plovdiv Búlgaríu.

Í einstaklingskeppni sveigboga karla var Ragnar ekki ánægður með frammistöðu sína í undankeppni EM þar sem hann endaði með 521 stig sem er frekar lágt miðað við hans venjulegu skor, en það dugði honum í 43 sæti, en aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM. Kannski var spenningurinn við að keppa á fyrsta EM að fara með hann.

Í liðakeppni sveigboga karla (3kk í liði) endaði Ragnar ásamt liðsfélögum Ara og Degi í 9 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki) og strákarnir mættu því Moldóvu sem var í 8 sæti í undankeppni í 16 liða úrslitum. Þar voru strákarnir okkar ekki að ná sér á strik í leiknum á meðan Moldóva var on fire og tók sigurinn 6-0 og strákarnir enduðu því í 9 sæti á meðan Moldóva hélt áfram í 8 liða úrslit.

Ragnar hefur lokið keppni á EM innandyra að þessu sinni er gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir 20-21 febrúar næstkomandi. Nokkrir Íslendingar eru að keppa til verðlauna í sínum keppnigreinum á EM, en fjallað verður nánar um það og EM almennt í öðrum fréttum á archery.is og bogfimi.is.