Ragnar tekur óvænt alla þrjá titlana í berboga U21, en Ragnar hefur aldrei áður unnið titil í berboga

Ragnar Smári Jónasson BFB Kópavogi vann Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni, Íslandsmeistaratitil karla og Íslandsmeistaratitil félagsliða, sem voru allir þrír Íslandsmeistaratitlar sem voru í boði á ÍM U21 í berboga á laugardaginn. Ásamt því sló hann Íslandsmet í félagsliðakeppni berboga U21.

Það mætti kalla þetta óvænt úrslit þar sem að Ragnar keppir að mestu í trissuboga og var ekki talinn sigurstranglegastur til þess að vinna neinn af titlunum í berboga. Enda er þetta í fyrsta sinn sem Ragnar vinnur Íslandsmeistaratitil í berboga á ferlinum, í öllum þrem tilfellum.

Íslandsmeistaratitil U21 karla

Í gull úrslitaleik U21 karla mættust Ragnar Smári Jónasson og Baldur Freyr Árnason báðir úr BFB. Baldur er almennt talinn sterkari og sigurstranglegri í berboganum og hefur unnið silfur og brons í einstaklingskeppni á EM og keppti um bronsið á EM 2026, en Baldur hefur verið að skipta úr bergboga yfir í sveigboga og var því ekki vel undirbúinn. Ragnar nýtti sér það vel og tók nokkuð öruggan en óvæntan sigur 6-2 og tók sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í berboga. Dagur Ómarsson BFHH tók bronsið.

Íslandsmeistaratitillinn U21 allra (óháð kyni)

Í gull úrslitaleik allra (óháð kyni) mættust Ragnar Smári Jónasson og Lóa Margrét Hauksdóttir bæði úr BFB. Lóa var talin sigurstranglegri gegn Ragnari þar sem hún keppti um bronsið á EM 2026 og vann silfur á EM árið 2024. Úrslitaleikurinn var harður bardagi. Lóa tók fyrstu umferðina 27-26 og því 2-0 forystu í leiknum. Þau jöfnuðu aðra umferð 23-23 og deildu því stigunum og staðan 3-1. Þau endurtóku það svo í þriðju umferð 22-22 og deildu stigunum aftur og staðan 4-2. Ragnar tók fjórðu lotuna með 1 stig 23-22 og jafnaði leikinn 4-4 og aðeins ein umferð eftir. En þar náði Ragnar loka lotunni 26-22 og tók því sigurinn 6-4 í leiknum. Þetta var fyrsti Íslandsmeistaratitil sem Ragnar hefur unnið í berboga á ferlinum. Auður Alma Viktorsdóttir úr SkotÍs tók brons úrslitaleikinn óvænt 6-2 gegn Baldur Freyr Árnason og Auður tók því sín fyrstu einstaklingsverðlaun á Íslandsmóti.

Íslandsmeistaratitill U21 félagsliða

Kópavogsmenn (Lóa Margrét Hauksdóttir og Ragnar Smári Jónasson) og Vestfirðingar (Úlfur Hrafn Hasler og Auður Alma Viktorsdóttir) áttust við í gull úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitil U21 félagsliða.
(BF Boginn BFB í Kópavogi og Skotíþróttafélag Ísafjarðar SkotÍs á Ísafirði).
Félagslið BF Bogans slógu Íslandsmetið í Berboga U21 félagsliðakeppni í undankeppni ÍM með 941 stig, metið var áður 839. Kópavogsmenn voru því taldir sigurstranglegri.
Kópavogsmenn unnu þrjár lotur í röð og tóku því nokkuð öruggann sigur 6-0 og Íslandsmeistaratitilinn þó að Vestfirðingar höfðu barist hart þurftu þeir að láta sér silfrið duga í þetta sinn.

Samantekt af árangri Ragnars á ÍM U21

  • Ragnar Smári Jónasson BFB – Íslandsmeistari U21 (óháð kyni)
    • Fyrsti titill í berboga
    • 4 titill í ungmennaflokkum óháð bogaflokki og óháð kyni einstaklinga
  • Ragnar Smári Jónasson BFB – Íslandsmeistari U21 karla
    • Fyrsti titill í berboga karla
    • 9 titill í ungmennaflokkum óháð bogaflokki karla einstaklinga
  • BF Boginn – Íslandsmeistari félagsliða U21
    • Annar titilinn í röð fyrir félagið innandyra berboga U21
    • Liðsmenn
      • Lóa Margrét Hauksdóttir – Fyrsti titill félagsliða berboga U21
      • Ragnar Smári Jónasson – Fyrsti titill félagsliða berboga U21
  • Íslandsmet – BF Boginn – Berbogi U21 félagsliðakeppni með 941 stig. Metið var áður 839
    • Liðsmenn
      • Lóa Margrét Hauksdóttir
      • Ragnar Smári Jónasson