Ragnar Smári Jónasson kom sá og sigraði alla þrjá Íslandsmeistaratitla trissuboga U21 á Íslandsmóti U21 í Bogfimisetrinu í dag. Ásamt því sló hann Íslandsmet félagsliða, jafnaði útsláttarleiks Íslandsmetið í meistaraflokki tvisvar ásamt fleiru
Íslandsmeistaratitill karla U21 einstaklinga
Ragnar sýndi enga miskun og vann Íslandsmeistaratitil U21 karla nokkuð örugglega í 148-137 gull úrslitaleik gegn liðsfélaga sínum úr BFB Magnús Darri Markússon. En Ragnar jafnaði einnig Íslandsmetið í undanúrslitum mótsins, einnig með 148 stig. Henry Snæbjörn Johnston vann bronsið í karla 139-134 gegn Natan Eir Skov Jensen báðir úr BFB.
Íslandsmeistaratitill félagsliða U21
Ragnar vann Íslandsmeistaratitil U21 félagsliða með Bogfimifélaginu Boganum í gull úrslitaleik gegn BFB liði2 þar sem lið Ragnars tók öruggann sigur með nýtt Íslandsmet 154-146. En þau slógu einnig Íslandsmetið í undanúrslitum einnig með 154 stig. BFB lið3 tók bronsið 146-141 á móti BFB liði4.
Íslandsmeistara titil einstaklinga óháð kyni U21
Ragnar mætti í gull úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil U21 óháð kyni liðfélaga sínum, Þórdís Unnur Bjarkadóttir. Ragnar vann leikinn 144-142 og tók þar með fullt hús af titlum (alla þrjá titlana í U21). Magnús Darri Markússon tók brons úrslitin gegn Henry Snæbjörn Johnston 143-140.
Heljarinnar vel gert hjá Ragnari um helgina.
- Íslandsmeistari U21 karla
- Íslandsmeistari félagsliða U21
- Íslandsmeistari U21 (óháð kyni, semsagt allra)
- Íslandsmet útsláttarkeppni félagsliða trissuboga U21 BF Boginn 154 stig, metið er 151 stig (þau slógu metið tvisvar á ÍM U21)
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Ragnar Smári Jónasson
- Ragnar Smári Jónasson BFB jafnaði Íslandsmetið í útsláttarkeppni karla U21 og meistaraflokki tvisvar á ÍM U21 með 148 stig
- Ragnar Smári Jónasson BFB var aðeins 1 stigi frá Íslandsmetinu í undankeppni trissuboga karla U21 með 585 stig en metið er 586 stig.
- BF Boginn U21 félagsliðið (Þórdís og Ragnar) voru aðeins einu stigi frá Íslandsmetinu í undankeppni með 1152 stig en metið er 1153 stig
Íslandsmeistaramóti í meistaraflokki trissuboga verður á sunnudaginn 22.03.2026 og Ragnar er einnig skráður þar til keppni. En hvort að hann nær að endurtaka U21 árangurinn í meistaraflokki og verja Íslandsmeistaratitil sinn í meistaraflokki frá síðasta ári mun ráðast á morgun.


