
Ragnar Smári Jónasson úr BF Boganum í Kópavogi endaði í 6 sæti í liðakeppni, 9 sæti í blandaðri liðakeppni og 9 sæti í einstaklingskeppni á Evrópubikarmóti ungmenna – EBU (European Youth Cup) sem haldið var í Catez Slóveníu 27 júlí – 3 ágúst. Mótið var þátttökumesta ungmennamót í sögu World Archery Europe.
Einstaklingskeppni
Í undankeppni einstaklinga skoraði Ragnar 683 stig og sló Íslandsmetið í U21 flokki með fjórum stigum sem var áður 679 sem hann átti sjálfur. Ásamt því jafnaði hann Íslandsmetið í meistaraflokki sem er einnig 683, en til þess að taka metið hefði hann þurft að skora einu stigi hærra. Frábær árangur og aðeins þriðja persónan á Íslandi til þess að ná skorinu.
Í 32 manna úrslitum lék Ragnar gegn Manuel Gonzalez frá Spáni. Leikurinn byrjaði jafn 28-28 í fyrstu umferð og þeir endurtóku það aftur í umferð tvö. Ragnar náði svo 1 stigs forskoti í umferð þrjú 30-29 með fullkomnu skori 10-10-10. Ragnar endurtók það svo í umferð 4 aftur 10-10-10 perfect score = 30 vs 29 og jók forskotið í leiknum í 2 stig 116-114 og aðeins ein umferð eftir. Í síðustu umferðinni jöfnuðu strákarnir 28-28 en það dugði Spánverjanum ekki þar sem hann var 2 stigum undir og Ragnar tók því sigurinn 144-142 sló því Spánverjann út og hélt áfram í 16 manna úrslit.
Í 16 manna úrslitum Evrópubikarmótsins mættust Ragnar og Rynhardt Van Der Merwe frá Suður-Afríku (skýring á afhverju Afríku þjóð er að keppa á Evrópumóti neðar). Þar var mótorinn hjá Ragnari hægur í gang. Ragnar byrjaði fyrstu umferð 30-27 Rynhardt í vil. Þeir jöfnuðu svo umferð tvö 28-28. Rynhardt náði svo aftur fullkomnu 30 á móti 28 frá Ragnari og einu stigi í viðbót í umferð fjögur 29-28 og staðan 117-111. Þeir jöfnuð svo síðust umferðina 29-29.
Suður-Afríka tók því sigurinn 146-140 og Ragnar endaði því í 9 sæti á Evrópubikarmóti ungmenna í Slóveníu eftir að vera slegin út í 16 manna úrslitum.
Afhverju er Suður-Afríka að keppa á Evrópubikarmóti? Svarið er að Evrópubikarmót hafa alltaf verið opin fyrir þátttöku frá öllum þjóðum. Að þessu sinni voru nokkrar þjóðir frá bæði Afríku og Asíu að keppa m.a. Egyptaland, Sameinuðu Furstadæmin og Suður-Afríka.
En þjóðir utan Evrópu get ekki unnið Evrópubikarmótaröð ungmenna sem er samanlagður einstaklings árangur frá öllum Evrópumótum ungmenna utandyra. En fjallað verður um lokaniðurstöður í Evrópubikarmótaröðinni í sér frétt þegar þær niðurstöður koma út.
Mixed Team (blönduð liðakeppni 1kk+1kvk)
Í trissuboga U21 blandaðri liðakeppni (mixed team) var Ragnar ásamt liðsfélaga sínum Eydísi Elide Sartori, í 11 sæti í undankeppni EBU. Þau mættu því liði Þýskalands í 16 liða úrslitum og leikurinn var nokkuð jafn.
Leikurinn byrjaði illa 29-39 með mjög lakri umferð frá Íslandi og næstum fullkomnri umferð frá Þýskalandi sem gaf þeim 10 stig forskot og nánast öruggt að Þýskaland myndi sigra leikinn. Íslendingarnir létu það þó ekki hafa áhrif á sig og svöruðu í sömu mynt með næstum fullkomna umferð 39-38 og söxuðu 1 stig af forskoti Þýskalands. Í þriðju og fjórðu umferð jöfnuðu Ísland og Þýskaland 35-35 og 36-36. Þannig að mjög vel af sér gert af Íslendingunum að láta ekki lélega umferð í upphafi hafa áhrif á sig og standa í hárinu á Þýskalandi, sem er eitt sterkasta lið í heiminum. En slegin út í 16 liða úrslitum þýðir að Ísland endar í 9 sæti.
Vert er að geta að í trissuboga þá er það lið sem skorar hærra skor í heild það sem vinnur leik, en í sveigboga og berboga eru stig gefin fyrir hverja lotu. Ef að lotukerfinu væri beitt þá hefði leikurinn endað í jafntefli (0-2, 2-2, 3-3, 4-4) og það hefði þurft bráðabana til þess að ákvarða hvort liðið tæki sigurinn og héldi áfram á mótinu í 8 liða úrslit. En svo er ekki og Íslenska liðið endaði því í 9 sæti á EBU eftir að tapa í 16 liða úrslitum 139-148 gegn Þýskalandi. En samt vel af sér vikið og mjög jafn leikur að mestum hluta.
Liðakeppni (3kk)
Í trissuboga U21 liðakeppni karla var Ragnar ásamt liðsfélögum sínum í Íslenska liðinu, í 6 sæti í undankeppni EBU með 1743 stig sem er nýtt Íslandsmet landsliða U21. Þeir mættu því Spænska liðinu í 8 liða úrslitum.
Leikurinn byrjaði nokkuð jafn 56-55, en eftir það settu Spánverjar í háa gírinn og skoruðu næstum fullkomið skor það sem eftir var leiksins. Strákarnir okkar stóðu sig mjög vel, en lítið hægt að gera þegar að hitt liðið gefur ekkert færi á sér. Spánverjar tóku því leikinn og unnu einnig Ítalíu sem voru efstir í undankeppni og leika um gullið síðar í dag. Ísland endaði í 6 sæti.
Vert er að geta að þetta er í fyrsta sinn sem Íslands skipar liði í trissuboga U21 karla í sögu íþróttarinnar á Evrópubikarmóti ungmenna. Ragnar hefur oftast bara verið einn og þótti mjög gaman að fá að keppa í liðakeppni karla líka í fyrsta sinn utandyra.
Um mótið
Mótið sjálft var án vafa sögulegur viðburður í stærð og fjölda þátttakenda og ekki langt frá því að segja að mótið hafi verið á HM leveli, enda nokkrar þjóðir utan Evrópu sem kepptu á mótinu líka.
- 317 keppendur á Evrópubikarmóti 2017 í Króatíu var áður stærsta ungmennamót í sögu íþróttarinnar í Evrópu
- 363 keppendur á EM ungmenna 2024 í Rúmeníu var áður stærsta ungmennamót í sögu íþróttarinnar í Evrópu
- Stærsta HM í sögu íþróttarinnar 584 og mótið nær því ekki að vera stærra en stærsta HM. En var sambærilegt í fjölda þátttakenda og 2 HM á síðustu 20 árum.
- 393 keppendur voru skráðir á Evrópubikarmótið í Slóveníu núna. Sem er því bæði stærra en öll Evrópubikarmót ungmenna sem haldin hafa verið og stærra en öll EM ungmenna sem haldin hafa verið hingað til. Sem gerir það að stærsta heimsálfu ungmennamóti í sögu íþróttarinnar.
Í heildina með þjálfurum/liðsstjórum voru yfir 500 þátttakendur á EBU í Slóveníu og slær einnig metið í heildarfjölda þátttakenda.
Samantekt af árangri:
- 9 sæti – Ragnar Smári Jónasson BFB – Trissuboga karla U21
- 9 sæti – Trissuboga U21 blandað lið (mixed team)
- Ragnar Smári Jónasson BFB
- Eydís Elide Sartori BFB
- 6 sæti – Trissuboga karla U21 lið
- Ragnar Smári Jónasson BFB
- Kaewmungkorn Yuangthong BFHH
- Bergur Freyr Geirsson BFB
(Fyrsta sinn sem Ísland skipar liði í greininni á Evrópubikarmóti)
- Ragnar Smári Jónasson – Íslandsmet – Trissuboga U21 karla – 683 stig (metið var áður 679)
- Ragnar jafnaði einnig Íslandsmetið í meistaraflokki, sem er 683 stig
- Ragnar bætti hæsta skor í trissuboga U21 á EBU
- Landsliðs Íslandsmet – Trissubogi U21 karla lið undankeppni 1743 stig
- Ragnar Smári Jónasson
- Kaewmungkorn Yuangthong
- Bergur Freyr Geirsson
- Landsliðs Íslandsmet – Trissubogi U21 karla lið útsláttarkeppni 210 stig
- Ragnar Smári Jónasson
- Kaewmungkorn Yuangthong
- Bergur Freyr Geirsson
Ragnar hefur því lokið keppni á Evrópubikarmótinu. En mögulegt verður að lesa nánar um mótið eftir að því lýkur að fullu á vefsíðu Bogfimisambands Íslands hér: