Ragnar Smári með tvo Íslandsmeistaratitla og tvö Íslandsmet á ÍM U21

Ragnar Smári Jónasson úr BFB Kópavogi vann Íslandsmeistaratitil U21 karla og í félagsliðakeppni og sló tvö Íslandsmet í félagsliðakeppni á Íslandsmóti U21 sem haldið var sunnudaginn 9 mars.

Í einstaklingskeppni trissuboga karla U21 kepptu í gull úrslitaleiknum Ragnar og Jóhannes Karl Klein úr BFHH Hafnarfirði. Ragnar vann gull úrslitaleikinn mjög örugglega 145-135 og tók titilinn í trissuboga U21 karla. Jóhannes gaf okkur tvö hjartaáföll í leiknum að skjóta örinni á síðustu stundu, líklega einn af áhugverðustu leikjum ársins.

Í einstaklingskeppni (óháð kyni) trissuboga U21 kepptu í gull úrslitaleiknum Ragnar og liðsfélagi hans Þórdís Unnur Bjarkadóttir. Úrslitaleikurinn var mjög jafn en Þórdís náði sigrinum 143-140 og Ragnar tók því silfrið í U21 óháð kyni.

Í trissuboga félagsliðakeppni tóku Ragnar og Þórdís liðsfélagi hans Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni. Þau tók öruggann 151-142 sigur í gull úrslitaleiknum gegn liði 2 frá Boganum í Kópavogi sem endaði í 2 sæti. 151 stig í er einnig nýtt Íslandsmet í útsláttarleik, metið var áður 150 stig.

Þórdís sló einnig Íslandmetið í tveggja manna undankeppni félagsliða með skorið 1130, metið var áður 1129. En gaman er að geta þessa að tæknilega séð voru þrjár manneskjur sem slógu liðametið fyrir Bogann. Freyja og Þórdís voru jafnar í skori í undankeppni ÍM U21 í skori og fjölda 10 og 9. Þannig að hlutkesti þurfti að ráða hvor endaði í liðinum með Ragnari sem var efstur í undankeppni mótsins. Þórdís vann hlutkestið. Íslandsmetið í undankeppni er tæknilega séð slegið sem lið en ekki sem einstaklingur, en haldið er utan um hvaða liðsmenn áttu hlutdeild að metinu. Þar sem að Þórdís og Freyja voru jafnar í undankeppni og áttu því jafn mikla hlutdeild í metinu eru þær báðar skráðar fyrir metinu. 3 persónur slógu 2 manna félagsliðamet. Þetta hefur aðeins gerst einu sinni áður í manna minnum að tveir keppendur hafa þurft að deila Íslandsmeti með sama árangur á sama degi.

Góð frammistaða hjá Ragnari á ÍM U21. Einum sigri frá fullkominni frammistöðu.

  • Íslandsmeistari trissuboga U21 karla
  • Íslandsmeistari sveigbogi U21 félagsliðakeppni
  • Silfur trissuboga U21 (óháð kyni)
  • Íslandsmet trissuboga U21 undankeppni félagsliða 1130 stig (metið var áður 1129)
  • Íslandmset trissuboga U21 útsláttarleik félagsliða 151 stig (metið var 150)