
Ragnar Smári Jónason í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi vann brons í einstaklingskeppni, silfur verðlauna í liðakeppni og sló landsliðsmet í liðakeppni á Norðurlandameistaramót ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.
Ragnar var í fjórða sæti í undankeppni mótsins í einstaklingskeppni trissuboga karla U21 og mætti í 8 manna úrslitum Jóhannes Karl Klein sem hann vann 139-132. Í undanúrslitum mætti hann Aleksej Skovlyst frá Danmörku þar sem að Daninn hafði betur 141-131 og Ragnar fór því í brons úrslitaleikinn. Aleksej tók á endanum titilinn gegn landa sínum í gull úrslitum 143-131.
Brons úrslitin á NUM var al Íslenskur leikur þar sem að mættust Ragnar og Kaewmungkorn Yuangthong liðsfélagi Ragnars. Ragnar byrjaði leikinn sterkur og eftir fjórðu umferð leiksins var hann kominn í 9 stiga forystu og nokkuð ljóst hver sigurvegarinn yrði. En Ragnar kom öllum á óvart og smellti einni ör óvænt framhjá skífunni. Það kom þó ekki að sök þar sem að Ragnar var búinn að vinna sér verulegt forskot í leiknum að hann vann leikinn samt 133-129 þrátt fyrir mistökin. Ragnar tók því bronsið í einstaklingskeppni á NM ungmenna 2025.
Í liðakeppni mættu Ragnar og liðsfélagar hans Freyja Dís Bendiktsdóttir og Kaewmungkorn Yuangthong liði Danmerkur í gull úrslitaleiknum sem var gífurlega jafn og spennandi.
Ísland byrjaði 3 stigum undir eftir fyrstu umferð 56-53, en náði svo að saxa forskotið niður í 1 stig í annarri umferð og Ísland náði 2 stig forskoti í þriðju umferð. Í síðustu umferð leiksins náðu Danir að jafna leikinn og því þurfti bráðabana til þess að ráða hvort liðið yrði Norðurlandameistari. Þar náðu Danir naumum sigri 29-28 og tóku titilinn. Lið Ragnars tók því silfið á NM ungmenna, en þó með nýtt landsliðsmet á NM ungmenna 217 stig á meðan eldra metið var 207 stig.
Vert er að geta að Danir eru ein sterkasta þjóð í heiminum í trissuboga og karla meistaraflokks liðið þeirra er t.d. í öðru sæti á heimslista í dag. Ansi gott að svo naumur munur sé á milli Íslensku og Dönsku ungmennanna, sem er næsta kynslóð meistaraflokks.
Niðurstöður af NM ungmenna 2025:
- Ragnar Smári Jónasson – Brons (3 sæti) – Trissuboga U21 karla – BFB
- Ragnar Smári Jónasson – Silfur (2 sæti) – Trissuboga U21 lið (Ísland)
- Íslandsmet Trissubogi U21 lið útsláttarleikur – 217 stig – Metið var áður 207 stig
- Ragnar Smári Jónasson
- Freyja Dís Benediktsdóttir
- Kaewmungkorn Yuangthong
Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan
Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons