
Ragnar Smári Jónasson vann silfur verðlaun í berboga karla U21 liðakeppni á Evrópumeistaramótinu innandyra 2025 í Samsun Tyrklandi 17-23 febrúar. Þetta eru önnur verðlaun sem Ragnar hefur unnið á EM U21. Ragnar var einnig að keppa í trissubogaflokki U21 á mótinu og komst í brons úrslitaleik liða, þar sem Króatía tók sigurinn.
Liðsfélagarnir Baldur, Henry og Ragnar kepptu í úrslitaleik berboga karla liðakeppni á móti heimaþjóðinni Tyrklandi á heimavelli. Tyrkir byrjuðu yfir 2-0 og strákarnir okkar tóku svo næstu tvær lotur 4-2. Tyrkir jöfnuðu svo leikinn 4-4 og knúðu fram bráðabana. Í bráðabananum áttu Tyrkir ótrúlega umferð með næstum fullkomið skor og tryggðu sér sigurinn í gull úrslitaleiknum á EM.
Tyrkir tóku því gullið í liðakeppni í bráðabana gegn Íslensku strákunum eftir jafntefli í úrslitaleiknum. Ísland tók gullið á EM 2024.
Silfur berbogi karla lið U21 fl.
Liðsmenn
- Baldur Freyr Árnason – BF Boginn Kópavogi
- Henry Johnston – BF Boginn Kópavogi
- Ragnar Smári Jónasson – BF Boginn Kópavogi
Liðsfélagarnir Ragnar, Daníel og Kaemungkorn kepptu í brons úrslitaleik trissuboga karla U21 liðakeppni á móti Króatíu á EM. Fyrsta umferð byrjaði jöfn 56-56, Króatar tók svo eins stig forskot 111-112 í miðju leik. Króatar áttu svo frábæra þriðju umferð 54-58 og juku forystuna í 165-170. Strákarnir okkar skoruðu hærra í síðustu umferð leiksins 56-55, en það var ekki nóg til að vinna upp muninn og Króatar tóku því bronsið 221-225 í trissuboga liðakeppni á EM U21. (Í berboga og sveigboga flokkum er farið eftir lotum en í trissuboga eftir samanlögðu skori, í lotu skori hefði leikurinn farið 3-5).
Nokkuð jafn leikur og 4 sæti flott niðurstaða fyrir okkar stráka, þó að það hefði verið gaman að ná bronsinu. Ísland endaði í 8 sæti á EM 2022 og 5 sæti á EM 2024, þetta er besta loka niðurstaða sem Ísland hefur náð í trissuboga karla U21 liðakeppni.
4 sæti trissubogi karla lið U21 fl
Liðsmenn
- Ragnar Smári Jónasson – BF Boginn Kópavogur
- Daníel Baldursson Hvidbro – Skaust Egilstaðir
- Kaewmungkorn Yuangthong – BF Hrói Höttur Hafnarfirði
Í einstaklingskeppni berboga karla U21 endaði Ragnar 6 sæti eftir að vera slegin út í 8 manna úrslitum 7-1 af Giulio Locchi frá Ítalíu sem vann silfur á EM 2024.
Í einstaklingskeppni trissuboga karla U21 náði Ragnar bestu niðurstöðu sem Ísland hefur náð í flokknum í einstaklingskeppni.
Ragnar var sleginn út af EM í 8 manna úrslitum á móti Lorenzo Gubbini frá Ítalíu sem var með hæsta skor í undankeppni mótsins. Þar átti Ítalinn einn besta leik mótsins á móti Ragnari og sló Ragnar út. Ragnar endaði því í 7 sæti EM U21. (Verst að Ragnar komst ekki áfram í undanúrslit af því að hann hefði miðað við skor fyrri leikja unnið Tyrkjann og Ítalann í undanúrslitum og komist í gull úrslitaleikinn hehe)
Niðurstöður Ragnars á EM 2025 í einstaklings og liðakeppni:
- Ragnar Smári Jónasson – 6 sæti berboga karla U21 (sleginn út af Ítala í 8 manna úrslitum)
- Ragnar Smári Jónasson – 7 sæti trissuboga karla U21 (sleginn út í 8 manna úrslitum af Ítala)
- Trissuboga U21 karla lið – 4 sæti
- Berbogi U21 karla lið – Silfur (2 sæti)
Nánari upplýsingar um EM 2025 er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér: