Ragnar Smári Jónasson BFB vann Íslandsmeistaratitil í einstaklingskeppni karla og titilinn í félagsliða á Íslandsmeistaramótinu í trissuboga sem haldið var í Bogfimisetrinu sunnudaginn 22 mars.
Íslandsmeistaratitill karla Meistaraflokkur: Fyrsta sinn í sögu íþróttarinnar þar sem keppendur um meistaraflokks titil karla eru báðir U21. En Ragnar ver Íslandsmeistaratitilinn sinn.
Um Íslandsmeistaratitil karla áttust við í gull úrslitum Ragnar Smári Jónasson 20 ára og Magnús Darri Markússon 15 ára báðir úr BFB Kópavogi. En gaman er að geta þess að þessir tveir drengir kepptu einnig í gull úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í U21 flokki á laugardaginn. Þetta var einnig í fyrsta sinn í sögu íþróttarinnar þar sem að keppendur í gull úrslitum karla voru báðir U21. Ansi kröftug ungmenni á ferð hér.
Magnús stóð sig frábærlega í undankeppni mótsins og bætti U18 Íslandsmetið töluvert með 568 stig, Íslandsmetið var áður 559 stig. Magnús sló einnig Alfreð Birgisson út í undanúrslitum sem hefur veitt Ragnari mestu samkeppni um titilinn hingað til, og því ljóst að það er sífellt að verða erfiðara fyrir Ragnar að vinna titla þar sem samkeppnin er sífellt að aukast.
Ragnar Smári var talinn líklegri til sigurs í gull úrslitunum, enda var hann búinn að vera að jafna Íslandsmetin í meistaraflokki og U21 flokki í undankeppni og útsláttarleikjum alla helgina, bæði á ÍM U21 og ÍM meistaraflokki. Ragnar var því talinn “the favorite to win” enda efstur í undankeppni ÍM líka.
Gull úrslita leikur karla var nokkuð jafn í upphafi:
Umferð 1 – 30-28 – Ragnar byrjaði með 2 stiga forskot
Umferð 2 – 29-30 – Magnús náði 1 stig til baka 59-58
Umferð 3 – 28-28 – Aðeins 1 stig sem skilur þá að í leiknum 87-86
Umferð 4 – 30-27
Umferð 5 – 30-28 – Ragnar gaf svo ekkert eftir í fjórðu og fimmtu umferð og Ragnar tók sigurinn 147-141, en gaman að geta þess að Íslandsmetið í útsláttarleik karla er 148 stig og Ragnar alltaf að snerta það.
Ragnar náði því að verja Íslandsmeistaratitilinn karla innandyra frá 2025 með því að vinna titilinn annað árið í röð (2025 og 2026), sem gæti verið upphaf að langri sigurröð?
Kaewmungkorn Yuangthong 21 árs úr BFHH Hafnarfirði vann bronsið á ÍM karla á móti Alfreð Birgisson 50 ára úr ÍFA Akureyri 144-143.
Íslandsmeistaratitill félagsliða: Nýtt Íslandsmet og fimmti titill BF Bogans í röð.
BF Boginn var yfirgnæfandi í liðakeppni um Íslandsmeistaratitil félagsliða. Sérstaklega áhugavert var að sterkasta lið mótsins samanstóð af þremur sterkustu keppendum í undankeppni ÍM í meistaraflokki sem voru öll sömu ungmenni sem kepptu líka um titlana í U21 flokki á ÍM U21 á laugardaginn. Ansi sterk ungmenni á uppleið.
Lið BF Bogans sló Íslandsmet félagsliða í undankeppni mótsins, með töluverðum mun 1731 en metið var 1715 áður.
BF Boginn tók Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni í gull úrslitum 229-224, sem er aðeins einu stigi frá núverandi Íslandsmeti í útsláttarleik félagsliða, sem er 230 stig. Með því tryggði BF Boginn sér fimmta Íslandsmeistaratitil sinn í röð í félagsliðakeppni trissuboga.
- BF Boginn Íslandsmeistari í félagsliðakeppni leikmenn:
- Ragnar Smári Jónasson
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Magnús Darri Markússon
Lið 2 frá BF Boganum tók silfrið og lið 3 frá BF Boganum tók bronsið. Frekar sterkt trissuboga crew þar, enda margir þeirra sem hafa skilað Íslandi verðlaunum á alþjóðlegri grundu á EM og Evrópubikarmótum, sérstaklega ungmennin.
Íslandsmeistaratitill trissuboga meistaraflokki (Allir/óháð kyni): Þórdís tekur sigurinn á móti Ragnari gegn líkunum.
Um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn í meistaraflokki (Allir/óháð kyni), sem væri hægt að kalla “the main event” þar sem að allir Íslendingar keppa, konur, karlar og allir, keppa um titilinn. Niðurstöðurnar voru mjög spennandi..
Þar mættust í gull úrslitum liðsfélagarnir Þórdís Unnur Bjarkadóttir 18 ára og Ragnar Smári Jónasson 20 ára, en áhugvert er að þau áttust einnig um titilinn í trissuboga U21 deginum áður (þar sem Ragnar tók sigurinn).
Þetta var aðeins í annað sinn í sögu íþróttarinnar þar sem báðir keppendur í gull úrslitum trissuboga meistaraflokks (óháð kyni) voru bæði U21 og í fyrsta sinn í sögunni sem það gerist innandyra.
Ragnar átti frekar auðvelda vegferð úr 16 manna úrslitum upp í gull úrslitaleikinn (enda að skora hátt), Þórdís líka nema smá “hjúkett” í 8 manna úrslitum þar sem hún fékk góða mótstöðu og vann naumann sigur 145-143 á móti Degi Erni.
Gull úrslitaleikurinn milli Ragnars og Þórdísar var þó óvenjulegur og skorið hjá þeim báðum var óvenju lágt miðað við aðra leiki á ÍM. Greinilegt að einhver spenna gæti hafa lætt sér inn í hugann, þar sem að hvorugt þeirra hafði áður unnið Íslandsmeistaratitilinn í trissuboga (Allir/óháð kyni) og því mikið í húfi fyrir bæði.
Gull úrslitaleikurinn var samt sem áður mjög spennandi:
28-29 Þórdís byrjaði með 1 stigs forskot eftir fyrstu umferð
56-58 Jók svo forskotið um annað stig í annarri umferð 28-29
84-86 Þau jöfnuðu þriðju lotu 28-28
113-113 Ragnar náði svo að jafna leikinn í fjórðu umferð 29-27 og aðeins lokaumferðinn í úrslitaleiknum eftir
140-141 Þar náði Þórdís sigrinum með einu stigi 28-27
Ragnar tók því silfrið með minnsta mögulega mun 1 stigi um titilinn óháð kyni.
Alfreð Birgisson 50 ára úr ÍFA Akureyri (sem vann titilinn 2025) vann bronsið á ÍM á móti Magnús Darra Markússyni 15 ára úr BFB Kópavogi 144-137
Samantekt af árangri Ragnars á ÍM:
- Íslandsmeistari karla meistaraflokkur
- Íslandsmeistari félagsliða
- Silfur um Íslandsmeistaratitilinn (allir/óháð kyni)
- Íslandsmet BF Boginn félagsliða meistaraflokkur undankeppni 1731 stig metið var áður 1715 stig
- Ragnar Smári Jónasson
- Magnús Darri Markússon
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Jafnaði Íslandsmetið tvisvar Ragnar Smári Jónasson í útsláttarkeppni meistaraflokki karla 148 stig
- 1 stig frá metinu Ragnar Smári Jónasson U21 karla undankeppni 585 stig en metið er 586 stig
- 1 stigi frá metinu BF Boginn félagslið (Þórdís/Magnús/Ragnar) útsláttarkeppni 229 stig en metið er 230.
Mögulegt er að lesa nánar um ÍM á bogfimi.is
Íslandsmeistaramót trissuboga meistaraflokki, ungmenni skara framúr






