
Ragnar Smári Jónasson úr BFB Kópavogi vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki karla í dag. Ragnar sló einnig tvö Íslandsmet í félagsliðakeppni, vann Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni og tók silfur um Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni.
Í einstaklingskeppni karla tók Ragnar gullið og titilinn. Ragnar sat hjá í 8 manna úrslitum, vann undanúrslitaleikinn 145-135 og endaði því að keppa í gull úrslitaleiknum gegn Alfreð Birgissyni úr ÍF Akur. Úrslitaleikurinn byrjaði jafn í fyrstu umferð, Ragnar náði svo 2 stiga forystu í annarri umferð leiksins, Ragnar jók það svo í 3 stiga forskot í fjórðu umferðinni. Alfreð náði að klóra sig smá til baka í síðustu umferðinni, en það var ekki nóg og Ragnar tók sigurinn og titilinn 143-141. Magnús Darri Markússon BFB tók brons úrslitaleikinn á móti Jóhannes Karl Klein 137-133.
Í einstaklingskeppni óháð kyni tók Ragnar silfrið, en það var eini titill mótsins sem rann honum úr greipum. Ragnar sat hjá í 16 manna úrslitum, vann í 8 manna úrslitum 144-139, í undanúrslitum vann Ragnar leikinn 143-140 og var því kominn í Gull úrslitaleikinn. Úrslitaleikurinn var aftur gegn Alfreð Birgisson úr ÍF Akur og var mjög jafn. Ragnar byrjaði 1 stigi yfir í fyrstu umferðinni og hélt þeirri forystu fyrstu 3 umferðinar. Í fjórðu umferðinni náði Alfreð þó að snúa leiknum við í 1 stigs forystu sér í vil og bætti það svo um 1 stig í viðbót í síðustu umferð leiksins. Alfreð tók endanlega sigurinn og titilinn óháð kyni 142-140 og Ragnar tók silfrið. Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB tók brons úrslitaleikinn gegn Önnu Maríu Alfreðsdóttir ÍFA 140-137.
Í félagsliðakeppni tók Ragnar sigurinn og titilinn með liðsfélögum sínum í BF Boganum eftir sigur í gull úrslitaleiknum gegn ÍF Akur 228-216. BF Hrói Höttur tók bronsið gegn liði BFB í brons úrslitaleiknum.
Ragnar sló einnig Íslandsmetið í undankeppni félagsliða, í undankeppni ÍM og sló Íslandsmetið í útsláttarleikjum félagsliða með liðsfélögum sínum Þórdísi Unnur Bjarkadóttir og Freyju Dís Benediktsdóttir. Þau gerðu það í gull úrslitaleik ÍM.
Einum sigri frá fullkomnu móti í meistaraflokki, það er lítið hægt að gera betur en það.
Samantekt af árangri Ragnars á ÍM í meistaraflokki:
- Íslandsmeistari karla
- Íslandsmeistari félagsliða
- Silfur óháð kyni
- Íslandsmet félagsliða undankeppni 1706 stig (metið var áður 1682 stig af 1800 mögulegum)
- Íslandsmet félagsliða útsláttarkeppni 228 stig (metið var áður 221 stig af 240 mögulegum.)
Sýnt var beint frá úrslitaleikjum mótsins á Archery TV Iceland rásinni og mögulegt er að finna heildarniðurstöður mótsins á ianseo.net.
https://www.youtube.com/@ArcheryTVIceland/streams
Þrír af fjórum Íslandsmeistaratitlum skiptu um hendur á ÍM trissuboga í M.fl.