
Ragnar Smári Jónasson úr BFB Kópavogi keppti á World Archery Youth Championships (HM ungmenna) í Winnipeg Kanada 18-24 ágúst og komst í 16 liða úrslit, endaði í 9 sæti í liðakeppni og 33 sæti í einstaklingskeppni, ásamt því að setja besta árangur Íslendings í trissuboga.
Í compound U21 mixed team (trissuboga U21 blandaðri liðakeppni) stóð lið Íslands saman af Freyju og Ragnari. Ísland komst áfram eftir undankeppni liða í 19 sæti í undankeppni, hæst áður var 25 sæti 2021 sem Ísland hafði náð en aðeins 24 lið halda áfram eftir undankeppni. Þetta var því í fyrsta sinn á HM ungmenna sem Íslenskt lið kemst áfram eftir undankeppni HMU og komst í útsláttarleiki.
Íslenska liðið mætti heimaþjóðinni Kanada á heimavelli í 24 liða útsláttarleikjum. Þar byrjaði Ísland á ótrúlegri fullkominni umferð 40 stig!! á móti 34 stigum frá Kanada. Til að bæta við hvað það er rosalegt þá gerði Ísland það í mjög erfiðum veður aðstæðum þar sem að mikill og breytilegur vindur var á vellinum. Þulur mótsins sem þylur upp yfir öll 120 mörk vallarins fyrir áhorfendur og aðra leikmenn trúði því ekki sjálfur þegar hann var að fara yfir skorin hjá liðunum á vellinum í 24 liða útsláttum að eitthvað lið hefði skorað fullkomið skor, hann benti sérstaklega á þetta og það var klappað á vellinum. Vert er að geta að þetta var eina fullkomna umferðinni hjá nokkurri þjóð í 24 liða útsláttum, 16 liða úrslitum, 8 liða úrslitum og það var ekki fyrr en í undanúrslitum þegar veðrið hafði róast sem að Mexíkó og Bandaríkin náðu einni fullkominni umferð hvor.
En aftur að leiknum, staðan 40-34 og Ísland með 6 stiga forskot. Næsta umferð var þó ekki eins góð (enda mikill vindur) og Kanada náði á klóra 4 stig til baka 34-38 og staðan 74-72. Kanada og Ísland jöfnuðu svo þriðju umferð 36-36 þrátt fyrir að vespa hafi stungið liðsfélaga Ragnars á meðan hún var að skjóta síðustu örinni í umferðinni (það var mjög mikið af vespum á vellinum). Staðan 110-108 fyrir Íslandi.
Kanada og Ísland jöfnuðu einnig fjórðu umferðina 34-34. Ísland sigraði því leikinn 144-142 og var með hæsta heildar skorið af öllum þjóðum í 24 liða úrslitum á vellinum!! Ekki amalegt, sérstaklega þar sem að Kanada var í 14 sæti í undankeppni HMU og var talið líklegra liðið til sigurs þar sem Ísland var í 19 sæti undankeppni HMU.
En Ísland tók sigurinn og hélt áfram í 16 liða úrslit. Sem er í fyrsta sinn sem Ísland kemst í úrslit á HM ungmenna í sögu íþróttarinnar.
Í 16 liða úrslitum mætti Ísland Spáni sem var í 3 sæti undankeppni HMU. Spánn byrjaði með 2 stiga forskot 37-35. Íslendingar jöfnuðu muninn 33-35 í annarri umferð og staðan 70-70 og leikurinn hálfnaður. En þar fundu Spánverjarnir gírinn og tóku tvær glæsilegar umferðir einu stigi frá fullkomnu skori 39-39 sem Ísland náði ekki að svara 36-32. Spánn tók því sigurinn 148-138 og sló Ísland út af HM ungmenna, Ísland endaði því í 9 sæti á HMU 2025, sem er hæsta sæti sem Ísland hefur náð á HM ungmenna.
Í einstaklingskeppni HMU mættust í 56 manna útslætti Ragnar og Carlos Manuel Flores Gonzalez frá Mexíkó. Ragnar byrjaði með fullkomið skor 30 stig á móti 26 stigum frá Carlos sem setti hann í góða stöðu. Það entist þó ekki lengi þar sem Carlos svaraði með fullkominni 30 umferð á meðan Ragnar tók óvenju langt skot (of miða) þar sem örin lenti í 6, sem er mjög óvenjulegt hjá Ragnari. En það verður að hafa það, staðan 55-56 fyrir Carlos. Strákarnir jöfnuðu þriðju umferð 28-28, Carlos enþá einu yfir 81-80. En Carlos sýndi svo enga miskun í fjórðu og fimmtu umferð sem enduðu báðar 29-27 og Carlos tók því sigurinn 142-137 og sló Ragnar út. Svekkjandi tap fyrir Ragnar en hann var “underdog” í leiknum þar sem Carlos var í 24 sæti undankeppni HMU á meðan Ragnar var í 41 sæti undankeppni HMU. Ragnar endaði því í 33 sæti HMU í einstaklingskeppni.
Mjög vel af sér vikið hjá Ragnari á sínu fyrsta og síðasta HMU, þar sem að Ragnar verður orðinn 21 árs þegar að næsta HMU er haldið í Tyrklandi 2027.
Samantekt af árangri Ragnars á HM ungmenna:
- Ragnar Smári Jónasson – 33 sæti einstaklingskeppni trissuboga U21 karla
- Ísland – 9 sæti liðakeppni Trissuboga U21 blandað
- Freyja Dís Benediktsdóttir
- Ragnar Smári Jónasson
- Ragnar Smári Jónasson : Besta lokasæti Íslendings á HMU – CU21M – 33 sæti – HMU 2025 Winnipeg (var áður 57 sæti)
- Ragnar Smári Jónasson : Besta sæti undankeppni Íslendings á HMU – CU21M – 41 sæti – HMU 2025 Winnipeg (var áður 70 sæti)
- Ragnar Smári Jónasson : Besta skor í undankeppni Íslendings á HMU – CU21M – 662 stig – HMU 2025 Winnipeg (var áður 577 stig)
- Fyrsti Íslendingur í 16 liða úrslitum HM ungmenna.
Mögulegt er að lesa nánar um mótið í frétt Bogfimisambands Íslands hér: