Ragnar Smári Evrópumeistari berboga U21

Ragnar Smári Jónasson úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti U21 í bogfimi innandyra í síðustu viku í Plovdiv Búlgaríu. Ragnar keppti í trissuboga og berboga á EM U21.

Í einstaklingskeppni trissuboga U21 karla var Ragnar með glæsilegt skor 584 stig, sem jafnar U21 metið og aðeins 3 stigum frá meistaraflokks Íslandsmetið, Ragnar endaði í 11 sæti í undankeppni EM. Einu stigi hærra í undankeppni og hann hefði verið í 7 sæti svo jafnt er á toppnum milli þeirra bestu sem Ragnar er klárlega kominn í hópinn af. Aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.

Ragnar skoraði það hátt í undankeppni að hann sat hjá í 32 manna úrslitum og hélt beint í 16 manna úrslit EM.

í 16 manna úrslitum mættust Jonas Grigaravicious frá Litháen sem var í 6 sæti í undankeppni EM. 587 skor hjá þeim Litháenska og 584 skor frá Ragnari í undankeppni EM, þetta yrði því vafalaust jafn og spennandi leikur þar sem sigurvegarinn yrði nánast byggður á heppni þar sem þeir eru bascially jafnir. Strákarnir byrjuðu jafnir 29-29. Jonas náði svo 1 stig forystu í umferð 2 59-58, strákarnir jöfnuðu umferð 3 og Jonas náði öðru stigi í umferð fjögur og staðan í leiknum 117-115. Í trissuboga er nánast ómögulegt að vinna upp 2 stiga mun í síðustu umferðinni. En Ragnar skaut á fyrstu ör 10, Jonas 9, 1 stig komið, ör 2 Ragnar skaut 10 og Jonas 9, annað stig komið leikurinn jafn og aðeins ein ör eftir. En þar skaut Jonas 10 á meðan Ragnar skaut 9. Litháneski tók því sigurinn í leiknum 145-144 í gífurlega spennandi og jöfnum leik. Ragnar var því sleginn út af EM og endaði í 9 sæti í trissuboga U21 karla.

Í liðakeppni trissuboga karla U21 endaði Íslenska liðið (Magnús, Ragnar og Ísar) í 5 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki).

Strákarnir okkar voru á endanum slegnir út af EM í 8 liða úrslitum gegn Belgíu.  Þar átti Belgía ótrúlega góðann leik gegn Íslandi (hæsta leik sinn á mótinu) með 234 stig á móti óvenju lökum leik frá okkar strákum með 220 stig. En svona er það, efmaður getur átt góða leiki þá verður maður að sætta sig við að geta líka átt laka leiki, jafnvægi í öllu. En strákarnir okkar enduðu í 5 sæti á EM sem er ekki amalegt.

Íslenska liðið (Þórdís og Ragnar) var í 4 sæti í undankeppni EM í trissuboga U21 blandaðri liðakeppni (mixed team). Þau sátu því hjá í 16 liða úrslitum EM og héldu beint í 8 liða úrslit.

Þar mætti lið Íslands liði Króatíu sem var í 5 sæti í undankeppni EM. Nánast enginn munur var á skorum liðana í undankeppni og því ljóst að það yrði harður bardagi um hvort liðið kæmist í undanúrslit EM. Bæði lið byrjuðu sterk með 40-39 umferð sem gaf Króatíu eins stigs forskot. Liðin jöfnuðu umferð 2. Króatía náði svo 2 stigum í viðbót í umferð þrjú, en Ísland náði að minnka muninn í síðustu umferð um 1 stig, en það var ekki nóg leiknum var lokið með 154-152 sigri Króatíu. Liðin eru það jöfn að það er nánast hlutkesti hvort liðið vinnur leik hverju sinni og að þessu sinni var það Króatía sem varð uppi. Súrt þar sem að efstu liðin eru það jöfn að Ísland hefði á réttum degi getað unnið Evrópumeistaratitilinn í þessari grein. En svona er það upp og niður eftir dagsforminu. Ísland endaði því í 8 sæti trissuboga U21 mixed team á EM.

Í einstaklingskeppni (útsláttarleikjum) berboga karla U21 mætti Ragnar liðsfélaga sínum Ragnari í 16 manna úrslitum EM. Þar tók Baldur nokkuð öruggann sigur 6-0 og hélt því áfram í 8 manna úrslit, Ragnar endaði í 9 sæti á EM í berboga U21 karla einstaklinga.

Í liðakeppni berboga karla U21 vann Íslenska liðið (Baldur, Ragnar og Henry) Evrópumeistaratitilinn í liðakeppni og eru “official” Evrópumeistarar. En strákarnir áttu að mæta Búlgaríu í gull úrslitaleiknum, en Búlgaría þurfti að draga sig úr leik vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna og Ísland tók því titilinn.

Samantekt af árangri á EM:

  • Niðurstöður Trissuboga:
    • Trissuboga undankeppni einstaklinga EM 11 sæti
    • Trissuboga lokakeppni einstaklinga EM 9 sæti
    • Trissuboga liðakeppni karla U21 5 sæti
      • Ísar Logi Þorsteinsson
      • Magnús Darri Markússon
      • Ragnar Smári Jónasson
    • Trissuboga blönduð liðakeppni U21 (mixed team) 9 sæti
      • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
      • Ragnar Smári Jónasson
  • Niðurstöður Berboga:
    • Berboga undankeppni einstaklinga EM 6 sæti
    • Berboga lokakeppni einstaklinga EM 6 sæti
    • Berboga Liðakeppni Evrópumeistarar (Gull, 1 sæti)
      • Baldur Freyr Árnason
      • Ragnar Smári Jónasson
      • Henry Johnston
    • Trissubogi karla U21 undankeppni landsliðsmet 1670 stig, var áður 1662 stig (einnig besti árangur Íslands í skori í undankeppni EM)
      • Ísar Logi Þorsteinsson
      • Magnús Darri Markússon
      • Ragnar Smári Jónasson
  • Íslandsmet
    • Berbogi mixed team U21 undankeppni landsliðsmet 825 stig
      • Ragnar Smári Jónasson
      • Lóa Margrét Hauksdóttir
    • Trissubogi mixed team U21 undankeppni landsliðsmet 1164 stig
      • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
      • Ragnar Smári Jónasson
    • Trissubogi mixed team U21 útsláttur landsliðsmet 152 stig
      • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
      • Ragnar Smári Jónasson
    • Nálægt Íslandsmetinu: Ragnar Smári Jónasson trissubogi karla meistaraflokkur undankeppni með 584 stig, en metið er 587 stig
    • Jafnaði U21 Íslandsmetið: Ragnar Smári Jónasson trissubogi karla U21 undankeppni með 584, sem jafnar núverandi met 584 stig
  • Besti árangur í einstaklingskeppni í sögu íþróttarinnar á EM innandyra:
    • Ragnar Smári Jónasson: Trissubogi U21 karla einstaklinga: Hæsta skor í undankeppni EM 584 stig, var áður best 574 stig á EM 2025

Mögulegt er að finna nánari fréttir um Ísland á EM innandyra í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Ísland í meðal top 5 þjóða í Evrópu