Ragnar Smári Jónasson í BF Boganum Kópavogi hreppti Bikarmeistaratitilinn 2026. Sinn annan Bikarmeistaratitil í röð innandyra, en hann vann einnig titilinn 2025.
Topp 3 í Bikarmótaröð BFSÍ innandyra Trissuboga:
- Ragnar Smári Jónasson BF Boginn – 1170 stig
- Alfreð Birgisson ÍF Akur – 1154 stig
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BF Boginn – 1147 stig
Loka niðurstöður og verðlaun hvers Bikarmóts fyrir sig innan Bikarmótaraðar BFSÍ byggist á útsláttarkeppni. Á meðan að Bikarmótaröðin byggist á skori úr undankeppni. Því eru einnig veitt verðlaun til þeirra sem voru sigurvegarar á hverju Bikarmóti og hægt að finna lista af þeim hér:
- Bikarmót BFSÍ September 2025 – Bogfimisetrinu
- Trissubogi: Ragnar Smári Jónasson BF Boginn
- Bikarmót BFSÍ Október 2025 – Bogfimisetrinu
- Trissubogi: Þórdís Unnur Bjarkadóttir BF Boginnn
- Bikarmót BFSÍ Nóvember 2025 – Bogfimisetrinu
- Trissubogi: Ragnar Smári Jónasson BF Boginn
- Bikarmót BFSÍ Desember 2025 – Bogfimisetrinu
- Trissubogi: Alfreð Birgisson ÍF Akur
- Bikarmót BFSÍ Janúar 2026 – Bogfimisetrinu
- Trissubogi: Þórdís Unnur Bjarkadóttir BF Bogin
Ragnar komst í gull úrslit 4 af 5 Bikarmótum BFSÍ á tímabilinu og vann tvo af þeim.
Bikarmeistarar – Meistaraflokkur Trissuboga
Trissubogi Bikarmeistari Innandyra
2026 Ragnar Smári Jónasson – BF Boginn – Kópavogur
2025 Ragnar Smári Jónasson – BF Boginn – Kópavogur
2024 Alfreð Birgisson – ÍF Akur – Akureyri
2023 Alfreð Birgisson – ÍF Akur – Akureyri
Trissubogi Bikarmeistari Utandyra
2026
2025 Alfreð Birgisson – ÍF Akur – Akureyri
2024 Alfreð Birgisson – ÍF Akur – Akureyri
2023 Sámuel Peterson – ÍF Akur – Akureyri
Bikarmótaröð BFSÍ og veiting Bikarmeistaratitla BFSÍ hófst formlega árið 2023. Formið á Bikarmótaröðinni er í anda heimsbikarmótaraða World Archery innandyra og utandyra. Margar þjóðir eru einnig með “national series” eða sambærileg mót í sama anda. Haldin voru ýmis bikarmót og mótaraðir á árunum 2013-2023 á meðan á þróun Bikarmótaraðar BFSÍ stóð, en engir formlegir Bikarmeistaratitlar veittir fyrr en þeirri þróun var lokið 2023.

