Natan í 6 sæti á sínu fyrsta EM og með landsliðsmet

Natan Eir Skov Jensen úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti í bogfimi innandyra í vikunni í Plovdiv Búlgaríu.

Í einstaklingskeppni trissuboga karla stóð Natan sig fínt í undankeppni EM með 546 stig sem dugði honum í 31 sæti, 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni einstaklinga á EM. Natan mætti því Shamai Yamrom frá Ísrael í 32 manna úrslitum, en Shamai var í 2 sætí í undankeppni EM og er góð vinur Íslendinga þar sem kærasta hans er í Íslenska liðinu. Þar tók sá Shamai öruggann sigur 147-139 og sló Natan út sem endaði í 17 sæti á EM.

Frábært gengi var í trissuboga liðakeppni karla, strákarnir voru í 7 sæti í undankeppni EM og liðið var á endanum slegið út af heimsmeisturum Frakklandi í 8 liða úrslitum. Strákarnir okkar náðu fullkomnu skori í fyrstu umferð, en Frakkarnir gáfu ekkert færi á sér í leiknum enda aðeins einu stigi frá fullkomnu skori og því að jafna heimsmetið í leiknum gegn Íslandi. Strákarnir okkar voru því slegnir út og enduðu því í 6 sæti á EM 2026 og Frakkar unnu sig á endanum upp í gull úrslitaleikinn á föstudaginn.

Gaman er að geta þess að strákarnir okkar slógu landsliðsmetið í trissuboga karla sem er 12 ára gamalt frá því að Ísland vann fyrst þátttökurétt á HM árið 2014 í trissuboga karla. Það met var 226 stig og strákarnir slógu það því með einu stigi.

Natan hefur lokið keppni á EM innandyra að þessu sinni er gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir 20-21 febrúar næstkomandi. Nokkrir Íslendingar eru að keppa til verðlauna í sínum keppnigreinum á EM, en fjallað verður nánar um það og EM almennt í öðrum fréttum á archery.is og bogfimi.is.