Nanna Líf Gautadóttir Presburg í 9 sæti á NM ungmenna

Nanna Líf Gautadóttir Presburg úr Íþróttafélaginu Akri á Akureyri keppti á NM ungmenna utandyra (NUM) í Óðinsvé Danmörku 3-7 júlí.

Nanna vann fyrsta leikinn 7-3 í 32 manna úrslitum á NUM gegn Eerika Savulahti frá Finnlandi. Nanna var svo slegin út af NUM í 16 manna úrslitum gegn Elsa Bohman frá Svíþjóð 6-0 og endaði í 9 sæti í einstaklingskeppni. Nanna endaði svo einnig í 9 sæti í liðakeppni með Norðurlandaliði eftir tap gegn Danmörku í 16 liða úrslitum 6-2.

Samantekt af niðurstöðum Nönnu á NUM:

  • 9 sæti sveigboga U18 liðakeppni á NM ungmenna
  • 9 sæti sveigboga kvenna U18 einstaklingskeppni á NM ungmenna

Frekari upplýsingar um mótið er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Ísland hér:

Frábært gengi Íslands á NM ungmenna í bogfimi um helgina með 5 Norðurlandameistara, 5 Norðurlandamet o.fl.