Marín Aníta Hilmarsdóttir úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti í bogfimi innandyra í vikunni í Plovdiv Búlgaríu.
Í einstaklingskeppni sveigboga kvenna endaði Marín í undankeppni EM í 22 sæti með 559 stig, en Íslandsmetið er 564 sem Marín á, þannig að Marín var að koma með sterka frammistöðu á EM. Aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.
Marín mætti því í 32 manna lokakeppni EM Nurinisso Makhmudova AIN (Individual Neutral Athletes). Leikurinn var mjög jafn en Marín skoraði allar umferðir rétt undir meðaltali skors úr undankeppni EM og sú frá AIN skoraði rétt yfir skorum, eins og eðlileg skor sveifla er á milli umferða/leikja, en það var ekki Marín í vil í þetta skiptið, Nurinisso tók því sigurinn og sló Marín út 6-0. Marín endaði því í 17 sæti á EM í sveigboga kvenna einstaklinga
Í liðakeppni sveigboga kvenna endaði Marín ásamt liðsfélögum í Íslenska liðinu í 7 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki). Stelpurnar slógu einnig Íslandsmetið í undankeppni sveigboga kvenna landsliða kvenna innandyra með undankeppnisskor upp á 1610 stig vs 1549 sem metið var áður.
Stelpurnar voru svo slegnar út í 8 liða úrslitum á móti Úkraínu þar sem okkar stelpur stóðu sig flott en Úkraína átti sérstaklega sterkann leik og gaf ekkert færi á sér. Ísland var því slegið út af EM og endaði því í 7 sæti.Úkraína sýndi óvenju mikinn styrk í öllum leikjum gegn Íslandi á EM.
Marín hefur lokið keppni á EM innandyra að þessu sinni er gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir 20-21 febrúar næstkomandi. Nokkrir Íslendingar eru að keppa til verðlauna í sínum keppnigreinum á EM, en fjallað verður nánar um það og EM almennt í öðrum fréttum á archery.is og bogfimi.is.

