
Marín Aníta Hilmarsdóttir tók þriðja íslandsmeistaratitilinn utandyra í röð óháð kyni á Íslandsmeistaramótinu 2025 utandyra. En hún hefur unnið alla titlana óháð kyni frá því að hann var veittur fyrst 2023.
Marín mætti í úrslitaleiknum Ara Björk úr Íþróttafélaginu Akur. Ari tók fyrstu lotuna 25-22 og 2-0 forystu. Marín tók aðra lotu leiksins örugglega 27-23 og jafnaði 2-2. Marín tók lotu 3 naumlega 24-23 og 4-2 forystu. Marín vann svo leikinn í fjórðu lotu 25-19 og tók sigurinn 6-2 og þriðja titil sinn í röð óháð kyni.
Marín tók einnig silfrið í sveigboga kvenna á móti Valgerði Hjaltested sem endaði ekki í bráðabana eins og gerist venjulega á milli þeirra á Íslandsmótum. Valgerður byrjaði 4-0 yfir og Marín náði 3 lotunni en Vala tók sigurinn í 4 lotu 24-23 og Marín tók því silfrið heim í kvenna.
Marín og Valgerður ásamt liðsfélaga sínum í Boganum Ragnari Þór Hafsteinssyni unnu Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni sveigboga örugglega 6-0. En þau þrjú unnið alla Íslandsmeistaratitla félagsliða í íþróttinni fyrir BF Bogann í sveigboga frá því að félagsliðakeppni var breytt í úr kynjuðum liðum árið 2024. 2024 bæði titlarnir innandyra og utandyra og sama aftur 2025.
Samantekt af árangri Marínar á ÍM25 utandyra:
- Sveigboga (óháð kyni) – Marín Aníta Hilmarsdóttir – BFB
- Marín hefur unnið alla titlana óháð kyni utandyra frá því að veiting þeirra hófst. Perfect record!
- Silfur Sveigbogi kvenna – Marín Aníta Hilmarsdóttir – BFB
- Íslandsmeistari félagsliða Sveigboga – BF Boginn – Annar titillinn félagsins í röð utandyra (fjórði í röð inni og úti)
- Marín Aníta Hilmarsdóttir
- Ragnar Þór Hafsteinsson
- Valgerður Hjaltested
- Lengsta óbrotna sigurröð Íslandsmeistaratitla óháð kyni utandyra í sveigboga – 3
- Lengsta óbrotna sigurröð Íslandsmeistaratitla óháð kyni í sveigboga – 2
Mögulegt er að lesa nánar um Íslandsmeistaramótið í frétt Bogfimisambands Íslands hér: