Marín Aníta Hilmarsdóttir í 17 sæti á EM

Marín Aníta Hilmarsdóttir í Boganum í Kópavogi endaði í 17 sæti í liðakeppni og 57 sæti í einstaklingskeppni á EM í meistaraflokki í bogfimi.

Marín endaði í 75 sæti í undankeppni EM og vann því þátttökurétt á EM (topp 104)

Á EM í einstaklingskeppni (útsláttarkeppni) keppti Marín gegn Nanna Jakobsen frá Danmörku. Leikurinn þeirra var gífurlega jafn, svo jafn að hann endaði í jafntefli 5-5 (getur ekki verið jafnari en það). Því þurfti bráðabana til þess að ákvarða hvor þeirra fengi að halda áfram á EM. Í bráðabana er skotið einni ör og sá sem er nær miðju vinnur, heppnin var ekki með Marín í þetta sinn en Nanna vann bráðabanann með skoti í 10 á meðan Marín skaut í 6.

Marín og liðsfélagar hennar voru svo slegnar út af EM af Tyrklandi 6-0 í 24 liða leikjum og enduðu því í 17 sæti í liðakeppni.

Evrópumeistaramótið utandyra var haldið í Essen 7-12 maí síðastliðinn á Rhine-Ruhr svæðinu í Þýskalandi. Um 40 þjóðir og 400 þátttakendur voru á EM að þessu sinni. Hver þjóð má aðeins senda 6 karla og 6 konur í undankeppni EM og venjan hefur verið að Ísland hafi verið að senda nánast fullan kvóta keppenda í undankeppni EM. En þátttaka Íslands að þessu sinni var óvenju lág meðal karla og aðeins einn maður sem lagði för sína á mótið en fullt lið kvenna í trissuboga og sveigboga.