Marín Aníta Hilmarsdóttir í BF Boganum í Kópavogi vann Bikarmeistaratitilinn 2026 í sveigboga. Þetta er annar titil Marínar í röð og samtals fjórði Bikarmeistaratitilinn hennar á ferlinum.
Topp 3 í Bikarmótaröð BFSÍ innandyra Sveigboga:
- Marín Aníta Hilmarsdóttir BF Boginn – 1107 stig
- Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir BF Boginn – 1086 stig
- Baldur Freyr Árnason BF Boginn – 1081 stig
Loka niðurstöður og verðlaun hvers Bikarmóts fyrir sig innan Bikarmótaraðar BFSÍ byggist á útsláttarkeppni. Á meðan að Bikarmótaröðin byggist á skori úr undankeppni. Því eru einnig veitt verðlaun til þeirra sem voru sigurvegarar á hverju Bikarmóti og hægt að finna lista af þeim hér:
- Bikarmót BFSÍ September 2025 – Bogfimisetrinu
- Sveigbogi: Dagur Örn Fannarsson BF Boginn
- Bikarmót BFSÍ Október 2025 – Bogfimisetrinu
- Sveigbogi: Ragnar Þór Hafsteinsson BF Boginn
- Bikarmót BFSÍ Nóvember 2025 – Bogfimisetrinu
- Sveigbogi: Astrid Daxböck BF Boginn
- Bikarmót BFSÍ Desember 2025 – Bogfimisetrinu
- Sveigbogi: Vala Hjaltested BF Boginn
- Bikarmót BFSÍ Janúar 2026 – Bogfimisetrinu
- Sveigbogi: Vala Hjaltested BF Boginn
Marín er í þeirri undarlegu stöðu að vera með hæstu tvö skorin á tímabilinu og því krýnd Bikarmeistari 2026, þrátt fyrir að hafa aðeins tekið þátt í 2 af 5 Bikarmótum BFSÍ og hafa ekki unnið neitt þeirra á tímabilinu.
Bikarmeistarar Meistaraflokkur Sveigboga
Sveigbogi Bikarmeistari Innandyra
2026 Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn – Kópavogur
2025 Valgerður E Hjaltested – BF Boginn – Kópavogur
2024 Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn – Kópavogur
2023 Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn – Kópavogur
Sveigbogi Bikarmeistari Utandyra
2026
2025 Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn – Kópavogur
2024 Astrid Daxböck – BF Boginn – Kópavogur
2023 Valgerður E. Hjaltested – BF Boginn – Kópavogur
Bikarmótaröð BFSÍ og veiting Bikarmeistaratitla BFSÍ hófst formlega árið 2023. Formið á Bikarmótaröðinni er í anda heimsbikarmótaraða World Archery innandyra og utandyra. Margar þjóðir eru einnig með “national series” eða sambærileg mót í sama anda. Haldin voru ýmis bikarmót og mótaraðir á árunum 2013-2023 á meðan á þróun Bikarmótaraðar BFSÍ stóð, en engir formlegir Bikarmeistaratitlar veittir fyrr en þeirri þróun var lokið 2023.

