Maria Kozak með 2 silfur á NM ungmenna í Svíþjóð

Maria Kozak í Skotíþróttafélagi Ísafjarðar vann silfur í liðakeppni og silfur í einstaklingskeppni á ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.

Maria endaði í 2 sæti í undankeppni NM ungmenna í sveigboga kvenna Open U21 flokki. Í undanúrslitum mætti hún Stella Wedholm sem hún vann örugglega 6-0 og hélt því í gull úrslitin. Í gull úrslitaleiknum mættust Maria og Jenný Magnúsdóttir. Þar hafði Jenný sigurinn 6-0 og Maria tók því silfrið á NM ungmenna 2025

Í gull úrslita leik liðakeppni mætti Maria, ásamt liðsfélögum sínum í Íslenska liðinu Jenný Magnúsdóttir og Elías Áka Hjaltason, sameinuðu Norðurlandaliði. Þar tók sameinaða Norðurlanda liðið öruggann sigur 6-0 Maria tók því silfrið í liðakeppni ásamt liðsfélögum sínum á NM ungmenna.

Niðurstöður af NM ungmenna 2025:

  • María Kozak – Silfur (2 sæti) – sveigboga U21 Open kvenna – SFÍ
  • María Kozak – 2 sæti – Sveigboga U21 Open lið (Ísland)

Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan

Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons