Magnús Darri Markússon úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti U21 í bogfimi innandyra í síðustu viku í Plovdiv Búlgaríu.
Í einstaklingskeppni trissuboga U21 karla var Magnús með þokkalega gott skor 553 stig og endaði í 19 sæti í undankeppni EM. Aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.
Magnús mætti því í fyrsta leik 32 manna lokakeppni EM Bekir Burak Arslan frá Tyrklandi sem var í 14 sæti í undankeppni EM. Tíurnar voru ekki samvinnuþýðar í fyrstu þremur umferðum leiksins hjá Magnúsi, en hann náði sér vel á strik í síðustu tveim umferðum leikins, m.a. með fullkomið skor í fjórðum umferðinni. En það var ekki nóg til að vinna niður 6 stiga muninn sem hafði safnast upp í níu regninu og leikurinn endaði þegar að Magnús var nýbyrjaður að saxa á forskot þess Tyrkenska. Sá Tyrkneski sló Magnús því út 144-140 af EM og Magnús endaði því í 17 sæti á EM 2026
Í liðakeppni trissuboga karla U21 endaði Íslenska liðið (Magnús, Ragnar og Ísar) í 5 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki).
Strákarnir okkar voru á endanum slegnir út af EM í 8 liða úrslitum gegn Belgíu. Þar átti Belgía ótrúlega góðann leik gegn Íslandi (hæsta leik sinn á mótinu) með 234 stig á móti óvenju lökum leik frá okkar strákum með 220 stig. En svona er það, efmaður getur átt góða leiki þá verður maður að sætta sig við að geta líka átt laka leiki, jafnvægi í öllu. En strákarnir okkar enduðu í 5 sæti á EM sem er ekki amalegt.
Samantekt af árangri á EM:
- Undankeppni einstaklinga EM 19 sæti
- Lokakeppni einstaklinga EM 17 sæti
- Liðakeppni 5 sæti
- Ísar Logi Þorsteinsson
- Magnús Darri Markússon
- Ragnar Smári Jónasson
- Trissubogi karla U21 undankeppni landsliðsmet 1670 stig, var áður 1662 stig (einnig besti árangur Íslands í skori í undankeppni EM)
- Ísar Logi Þorsteinsson
- Magnús Darri Markússon
- Ragnar Smári Jónasson
Magnús er aðeins 15 ára að keppa Í U21 flokki og er framtíðar fyrirliði Íslands í greininni, eftir að Ragnar Smári lauk sínu síðasta EM innandyra í U21 flokki á þessu ári.
Mögulegt er að finna nánari fréttir um Ísland á EM innandyra í frétt Bogfimisambands Íslands hér:



