Magnús Darri þrefaldur Íslandsmeistari U16 og sló 2 Íslandsmet

Magnús Darri Markússon vann um helgina alla þrjá Íslandsmeistaratitlana í trissuboga U16 flokki (karla, óháð kyni og félagsliða). Ásamt því sló Magnús tvö Íslandsmet á mótinu, Íslandsmetið í útsláttarkeppni U16 einstaklinga og í félagsliðakeppni U16 undankeppni með liðsfélaga sínum Sóldísi í BF Boganum.

Í trissuboga U16 karla var Magnús efstur eftir undankeppni mótsins og sat því hjá í 8 manna úrslitum. Magnús mætti svo Manuel Arnar frá Egilstöðum í undanúrslitum þar sem Magnús tók sigurinn og Íslandsmetið 146-123, og tryggði sig inn í gull úrslitaleikinn. Í gull úrslitum mættust félagarnir Magnús og Bergur Freyr í Boganum í gífurlega jöfnum leik sem endaði með sigri Magnúsar á síðustu örinni í leiknum 142-141 og Íslandsmeistaratitil trissuboga U16 karla.

Í trissuboga U16 (óháð kyni) 8 manna úrslitum vann Magnús öruggann sigur 140-117 gegn Fróða frá Egilstöðum. Í undanúrslitum mætti hann aftur félaga sínum Bergi og aftur var gífurlega jafn leikur sem endaði með eins stigs sigri Magnúsar 141-140. Magnús hélt því í gull úrslitaleikinn aftur en núna í keppni óháð kyni. Í gull úrslitaleiknum mætti Magnús liðsfélaga sínum Sóldísi Ingu Gunnarsdóttir sem var efst í undankeppni mótsins. Magnús náði þar yfirhöndinni og tók sigurinn 143-138. Bergur tók svo bronsið 137-123 á móti vini sínum Birki.

Í trissuboga U16 félagsliðakeppni tóku Magnús Darri og Sóldís Inga, liðsfélagi hans í BF Boganum, Íslandsmeistaratitilinn með 1135 stigum á móti 1108 stigum frá Boganum liði 2. Skaust á Egilstöðum tók bronsið. Magnús og Sóldís slógu einnig Íslandsmetið í trissuboga U16 félagsliðakeppni með skorið 1135, en metið var áður 1124.

Samantekt af árangri Magnúsar á Íslandsmóti U16:

  • Íslandsmeistari Trissubogi U16 karla – Magnús Darri Markússon – BFB Kópavogur
  • Íslandsmeistari Trissubogi U16 (óháð kyni) – Magnús Darri Markússon – BFB Kópavogur
  • Íslandsmeistari Trissuboga félagsliðakeppni U16 – BF Boginn Kópavogi
    • Magnús Darri Markússon
    • Sóldís Inga Gunnarsdóttir
  • Íslandsmet Trissuboga félagsliðakeppni U16 – BF Boginn – 1135 stig (metið var 1124)
    • Sóldís Inga Gunnarsdóttir
    • Magnús Darri Markússon
  • Íslandsmet – Trissuboga U16 útsláttarkeppni – Magnús Darri Markússon – BF Boginn – 146 stig (metið var áður 142 og Magnús sló það í raun tvisvar á mótinu með skorið 143 og 146 þó að það telist aðeins sem eitt met þar sem þau eru slegin á sama degi, hann jafnaði metið líka með 142 í öðrum leik á mótinu)

Íslandsmót U16 innandyra var haldið í Bogfimisetrinu laugardaginn 12 apríl 2025.

Keppt er í fjórum keppnisgreinum

  • sveigboga
  • berboga
  • trissuboga
  • langboga/hefðbundnum bogum.

Keppt er um 4 Íslandsmeistaratitla í hverjum flokki

  • Einstaklings karla
  • Einstaklings kvenna
  • Einstaklings (óháð kyni)
  • Félagsliða (óháð kyni)

Mögulegt er að finna frekari upplýsingar hér:

Íslandsmót U16 – 13 titlar 7 met og 1 afmæli