Magnús Darri með tvo Íslandsmeistaratitla á ÍM U18

Magnús Darri Markússon úr Boganum Kópavogi vann tvo Íslandsmeistaratitla U18 og tók eitt silfur á Íslandsmóti U18 sem haldið var laugardaginn 8 mars.

Í einstaklingskeppni trissuboga karla U18 kepptu í gull úrslitaleiknum Magnús og Bergur Freyr Geirsson liðsfélagi hans úr Boganum. Magnús vann leikinn og titilinn 139-135 í nokkuð jöfnum leik.

Í einstaklingskeppni (óháð kyni) trissuboga U18 kepptu í gull úrslitaleiknum Magnús og liðsfélagi hans Þórdís Unnur Bjarkadóttir. Þórdís vann úrslitaleikinn 141-137 í nokkuð jöfnum leik þar sem Þórdís var ekki langt frá Íslandsmetinu, en Þórdís kom út á toppnum og tók titilinn.

Í trissuboga félagsliðakeppni tóku Magnús og Þórdís liðsfélagi hans titilinn. Þau tóku sigurinn 1148-1054 gegn Boganum-2 sem tók silfrið. Þórdís og Magnús settu einnig Íslandsmetið í trissuboga U18 félagsliðakeppni með skorið 1148.

Það er lítið meira hægt að gera en að vinna alla nema sinn eigin liðsmann og setja Íslandsmet.

  • Íslandsmeistari trissubogi U18 kvenna
  • Íslandsmeistari trissubogi U18 (óháð kyni)
  • Íslandsmeistari trissubogi U18 félagsliðakeppni
  • Íslandsmet trissubogi U18 félagsliðakeppni 1148 stig