Magnús Darri í 9 sæti á þátttökumesta ungmennamóti í sögu World Archery Europe

Magnús Darri Markússon endaði í 9 sæti í liðakeppni og 17 sæti í einstaklingskeppni á Evrópubikarmóti ungmenna – EBU (European Youth Cup) sem haldið var í Catez Slóveníu  27 júlí – 3 ágúst. Mótið var þátttökumesta ungmennamót í sögu World Archery Europe.

Í trissuboga U18 blandaðri liðakeppni (mixed team) var Magnús ásamt liðsfélaga sínum Þórdísi Unnur, í 10 sæti í undankeppni EBU. Þau mættu því liði Belgíu í 16 liða úrslitum og leikurinn var nokkuð jafn.Leikurinn byrjaði jafn 37-37 í fyrstu umferð og önnur umferð einnig jöfn 37-37. Ísland tók svo lakari síðari helming 38-34 og 38-32. Belgía tók því sigurinn 150-140 og sló Íslenska liðið út sem endaði í 9 sæti. Veðrið var mjög gott á mótinu og Íslenska liðið sló landsliðs Íslandsmetið í liðakeppni um 2 stig.

Þetta er í annað sinn sem Magnús keppir á Evrópubikarmóti, en Þórdís og Magnús voru einnig lið Íslands á Evrópubikarmótinu í Búlgaríu í maí á þessu ári, þar sem þau tóku bronsið í liðakeppni eftir sigur gegn Portúgal 138-135 í bronsúrlitaleiknum í frekar vondu veðri.

Í undankeppni einstaklinga skoraði Magnús 555 stig og var í 32 sæti í trissuboga U18 karla. Í 32 manna úrslitum lék Magnús gegn Timotej Obreza Skerjanec frá Slóveníu. Þar vann Timotej 145-110 og sló Magnús út úr einstaklingskeppni. Magnús endaði því í 17 sæti einstaklinga í lokaniðurstöðum EBU.

Mótið sjálft var án vafa sögulegur viðburður í stærð og fjölda þátttakenda og ekki langt frá því að segja að mótið hafi verið á HM leveli, enda nokkrar þjóðir utan Evrópu sem kepptu á mótinu líka.

  • 317 keppendur á Evrópubikarmóti 2017 í Króatíu var áður stærsta ungmennamót  í sögu íþróttarinnar í Evrópu
  • 363 keppendur á EM ungmenna 2024 í Rúmeníu var áður stærsta ungmennamót í sögu íþróttarinnar í Evrópu
  • Stærsta HM í sögu íþróttarinnar 584 og mótið nær því ekki að vera stærra en stærsta HM. En var sambærilegt í fjölda þátttakenda og 2 HM á síðustu 20 árum.
  • 393 keppendur voru skráðir á Evrópubikarmótið í Slóveníu núna. Sem er því bæði stærra en öll Evrópubikarmót ungmenna sem haldin hafa verið og stærra en öll EM ungmenna sem haldin hafa verið hingað til. Sem gerir það að stærsta heimsálfu ungmennamóti í sögu íþróttarinnar.

Í heildina með þjálfurum/liðsstjórum voru yfir 500 þátttakendur á EBU í Slóveníu og slær einnig metið í heildarfjölda þátttakenda.

Samantekt af árangri:

  1. 17 sæti – Magnús Darri Markússon BFB – Trissuboga karla U18
  2. 9 sæti – Trissuboga U18 blandað lið (mixed team)
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
    • Magnús Darri Markússon BFB
  3. Landsliðs Íslandsmet –  Trissubogi U18 blandað lið útsláttarkeppni – 140 stig (metið var áður 138)
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
    • Magnús Darri Markússon

Magnús hefur því lokið keppni á Evrópubikarmótinu. En mögulegt verður að lesa nánar um mótið eftir að því lýkur að fullu á vefsíðu Bogfimisambands Íslands hér:

Home