Lóa Margrét þrefaldur Íslandsmeistari U18 á laugardaginn

Lóa Margrét Hauksdóttir úr Boganum Kópavogi vann alla þrjá Íslandsmeistaratitla U18 sem henni stóð í boði að keppa um á Íslandsmóti U18 sem haldið var laugardaginn 8 mars.

Í einstaklingskeppni berboga kvenna U18 kepptu í gull úrslitaleiknum Lóa og Ragnheiður Íris Klein úr BFHH Hafnarfirði. Lóa vann leikinn og titilinn 6-2 sigur í mjög jöfnum úrslitaleik.

Í einstaklingskeppni (óháð kyni) berboga U18 kepptu í gull úrslitaleiknum Lóa og liðsfélagi hennar Henry Johnston. Lóa vann úrslitaleikinn örugglega 6-0 og tók titilinn.

Í berboga félagsliðakeppni tóku Lóa og Henry Johnston liðsfélagi hennar titilinn. Þau tóku sigurinn gegn Aftureldingu 920-646 Aftureldingu sem tók silfrið.

Fullkomin frammistaða hjá Lóu á ÍM U18. Það er lítið meira hægt að gera en að vinna allt.

  • Íslandsmeistari berbogi U18 kvenna
  • Íslandsmeistari berbogi U18 (óháð kyni)
  • Íslandsmeistari berbogi U18 félagsliðakeppni