Lóa Margrét Hauksdóttir BFB Kópavogi tók sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í U21 flokki bæði í einstaklingskeppni og liðakeppni á Íslandsmeistaramóti U21 í berboga á laugardaginn. Ásamt því að slá Íslandsmetið í félagsliðakeppni og taka silfur um titilinn óháð kyni
Íslandsmeistaratitill U21 kvenna
Í gull úrslitaleik U21 kvenna mættust Lóa Margrét Hauksdóttir BFB og Auður Alma Viktorsdóttir SkotÍs. Lóa var talin sigurstranglegri þar sem hún keppti um bronsið á EM 2026 og vann silfur á EM árið 2024 og því hátt fjall til að klífa fyrir Auði. Leikurinn var þó merkilega jafn óháð því. Lóa tók fyrstu lotuna 23-21 og því 2-0 forskot í leiknum. Lóa tók lotu 2 23-19 og staðan 4-0. Auður vann þriðju lotu 20-19 og minnkaði muninn 4-2. En Lóa tók svo sigurinn í fjórðu lotu 25-23 og því sigurinn í leiknum 6-2 og titilinn. Þetta var fyrsti Íslandsmeistaratitill Lóu í U21 flokki en hún hefur keppt mest í U18 flokki á ÍM hingað til
Íslandsmeistaratitillinn U21 allra (óháð kyni)
Í gull úrslitaleik allra (óháð kyni) mættust Ragnar Smári Jónasson og Lóa Margrét Hauksdóttir bæði úr BFB. Lóa var talin sigurstranglegri gegn Ragnari þar sem hún keppti um bronsið á EM 2026 og vann silfur á EM árið 2024. Úrslitaleikurinn var harður bardagi. Lóa tók fyrstu umferðina 27-26 og því 2-0 forystu í leiknum. Þau jöfnuðu aðra umferð 23-23 og deildu því stigunum og staðan 3-1. Þau endurtóku það svo í þriðju umferð 22-22 og deildu stigunum aftur og staðan 4-2. Ragnar tók fjórðu lotuna með 1 stig 23-22 og jafnaði leikinn 4-4 og aðeins ein umferð eftir. En þar náði Ragnar loka lotunni 26-22 og tók því sigurinn óvænt 6-4 í leiknum. Þetta var fyrsti Íslandsmeistaratitil sem Ragnar hefur unnið í berboga á ferlinum. Auður Alma Viktorsdóttir úr SkotÍs tók brons úrslitaleikinn óvænt 6-2 gegn Baldur Freyr Árnason úr BFB.
Íslandsmeistaratitill U21 félagsliða
Kópavogsmenn (Lóa Margrét Hauksdóttir og Ragnar Smári Jónasson) og Vestfirðingar (Úlfur Hrafn Hasler og Auður Alma Viktorsdóttir) áttust við í gull úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitil U21 félagsliða.
(BF Boginn BFB í Kópavogi og Skotíþróttafélag Ísafjarðar SkotÍs á Ísafirði).
Félagslið BF Bogans slógu Íslandsmetið í Berboga U21 félagsliðakeppni í undankeppni ÍM með 941 stig, metið var áður 839. Kópavogsmenn voru því taldir sigurstranglegri.
Kópavogsmenn unnu þrjár lotur í röð og tóku því nokkuð öruggann sigur 6-0 og Íslandsmeistaratitilinn þó að Vestfirðingar höfðu barist hart þurftu þeir að láta sér silfrið duga í þetta sinn.
Samantekt af árangri Lóu á ÍM U21
- Lóa Margrét Hauksdóttir BFB – Íslandsmeistari U21 kvenna
- Fyrsti titilinn í berboga U21 kvenna
- 6 titilinn í ungmennaflokkum berboga kvenna einstaklinga
- BF Boginn – Íslandsmeistari félagsliða U21
- Annar titilinn í röð fyrir félagið innandyra berboga U21
- Liðsmenn
- Lóa Margrét Hauksdóttir – Fyrsti titill félagsliða berboga U21
- Ragnar Smári Jónasson – Fyrsti titill félagsliða berboga U21
- Lóa Margrét Hauksdóttir BFB – Silfur berbogi U21 óháð kyni
- Íslandsmet – BF Boginn – Berbogi U21 félagsliðakeppni með 941 stig. Metið var áður 839
- Liðsmenn
- Lóa Margrét Hauksdóttir
- Ragnar Smári Jónasson
- Liðsmenn


