Lóa Margrét Hauksdóttir úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti U21 í bogfimi innandyra í síðustu viku í Plovdiv Búlgaríu.
Í einstaklingskeppni berboga U21 kvenna var Lóa ekki að skora sitt besta en náði samt 414 stig og endaði í 7 sæti í undankeppni EM. Aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.
Lóa mætti því í 16 manna úrslitum EM liðsfélaga sínum Önnu Guðrúnu Yu Þórbergsdóttur sem var í 10 sæti í undankeppni EM. Stelpurnar voru greinilega staðráðnar í því að gera leikinn spennandi þar sem að þær skiptust á því að skora góðar og lakar umferðir og leikurinn endaði í bráðabana. Bara til að halda Íslensku áhorfendunum á tánnum 😂. Þar tók Lóa þó sigurinn með 8 á móti 5 og hélt því áfram í 8 manna úrslit, Anna endaði í 9 sæti á EM.
Í 8 manna úrslitum mættust Lóa og Ecem Dilara Deniz frá Tyrklandi. Leikurinn var nokkuð jafn og stelpurnar skiptust á því að taka sigurinn í fyrstu tveim lotunum 2-2. Lóa tók þriðju lotuna með frábærri umferð 28 á móti 24 og var því 4-2 yfir. Í siðustu umferðinni skoraði sú Tyrkneska 18 sem var ekki nóg þar sem að Lóa skoraði 19, Lóa tók því tvö stigin fyrir umferðina og sigurinn 6-2 og hélt áfram í undanúrslit Em
Í undanúrslitum mætti Lóa Evie Finnegan frá Bretlandi. Þar byrjaði Lóa á því að taka fyrstu umferðina 2-0, en sú Breska náði svo að sigra næstu 3 umferðir í röð og tók sigurinn 6-2 og hélt í gull úrslitaleikinn. Lóa myndi því keppa um brons
Í brons úrslitaleiknum mætti Lóa Lai Eleonora frá Ítalíu. Stelpurnar jöfnuðu fyrstu umferðina og deildu stigunum 1-1. Ítalska tók svo næstu tvær umferðir 3-1, 5-1 og nú mátti engu muna þar sem sigurvegarinn er sá sem er fyrr að ná 6 stigum og Lóa þurfti að vinna næstu tvær umferðir til þess að jafna leikinn og knýgja fram bráðabana. Lóa tók fjórðu umferðina með aðeins einu stigi 26-25 og staðan í leiknum því 5-3 og aðeins ein umferð eftir. En þar tók sú Ítalska sigurinn í lotunni 23-17 og því einnig sigurinn í leiknum 7-3 og bronsið á EM. Lóa endaði því í 4 sæti í einstaklingskeppni á EM 2026
Í berboga U21 blandaðri liðakeppni (mixed team 1kk+1kvk) endaði Íslenska liðið (Lóa og Baldur) í 4 sæti í undankeppni EM og mættu því liði Ítalíu í undanúrslitum. Þar tók Ítalía öruggann sigur 6-0 þó að littlu mætti muna á mörgum umferðunum. Íslenska liðið fór því í brons úrslit.
Í brons úrslitum mættust Ísland og Rús… hehemm Lið AIN (Individual Neurtral Athletes). Þar tók byrjaði Ísland betur og tók fyrstu 2 umferðirnar og leiddi leikinn 4-0, Rú.. Ain tók umferð 3 og okkar fólk vann svo loka umferðina og tók leikinn 6-2 og bronsið á EM í blandaðri liðakeppni.
Í liðakeppni berboga kvenna U21 vann Íslenska liðið (Lóa, Anna Yu og Þórdís) Evrópumeistaratitilinn í liðakeppni og eru “official” Evrópumeistarar. En stelpurnar áttu að mæta Búlgaríu í gull úrslitaleiknum, en Búlgaría þurfti að draga sig úr leik vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna og Ísland tók því titilinn.
Samantekt af árangri á EM:
- Undankeppni einstaklinga EM 7 sæti
- Lokakeppni einstaklinga EM 4 sæti
- Blönduð liðakeppni (Mixed team) Brons (3 sæti)
- Lóa Margrét Hauksdóttir
- Baldur Freyr Árnason
- Liðakeppni Evrópumeistarar (Gull, 1 sæti)
- Lóa Margrét Hauksdóttir
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir
- Berbogi mixed team U21 undankeppni landsliðsmet 825 stig
- Ragnar Smári Jónasson
- Lóa Margrét Hauksdóttir
Mögulegt er að finna nánari fréttir um Ísland á EM innandyra í frétt Bogfimisambands Íslands hér:











