
Lóa Margrét Hauksdóttir í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi endaði í 5 sæti í liðakeppni og 9 sæti í einstaklingskeppni, ásamt því að slá Íslandsmet á Norðurlandameistaramóti ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.
Lóa var í 7 sæti í undankeppni mótsins í berboga U18 kvenna með skorið 517, sem er nýtt Íslandsmet í berboga U18 kvenna en metið var áður 483.
Lóa sat hjá í 32 manna úrslitum og hélt beint í 16 manna úrslit.
Í 16 manna úrslitum mættust Lóa og Elsa Eilola frá Svíþjóð í ótrúlega jöfnum leik. Stelpurnar jöfnuðu fyrstu lotuna 15-15 og staðan í leiknum því 1-1 og endurtóku það aftur í lotu 2 18-18 og staðan 2-2. Svíinn var svo heppinn og náði sigri með lægsta mögulega mun í bæði lotu 3 og 4 og tók því sigurinn 6-2 í leiknum. Lóa endaði því í 9 sæti í einstaklingskeppni á NM ungmenna 2025
Í liðakeppni mættu Lóa og liðsfélagar hennar, í blönduðu Norðurlandalið (Nordic Team) Ragnheiður Íris Klein og Lilja S Winther, sjötta liði Svíþjóðar (já Svíþjóð er stórþjóð í berboga) í 16 liða úrslitum. Þar tóku Lóa og liðsfélagar hennar öruggann sigur 5-1 og héldu í 8 liða úrslit
Í 8 liða úrslitum mættu Lóa og liðsfélagar aðal liðið Svíþjóðar í mjög spennandi leik. Svíþjóð tók fyrstu lotuna 2-0, lið Lóu tók næstu 2 lotur og forskotið 4-2, Svíjar jöfnuðu svo leikinn 4-4 í síðustu lotunni. Því þurfti bráðabana til þess að ákvarða hvort liðið héldi áfram í undanúrlit. Þar náði Svíþjóð sigrinum með littlum mun 27-25 og tóku leikinn og héldu í undanúrslit og tóku á endanum titilinn. Þar sem að lið Lóu var með flest stig af þeim liðum sem slegin voru út í 8 liða úrslitum endaðu þau í 5 sæti á NM ungmenna 2025
Niðurstöður af NM ungmenna 2025:
- Lóa Margrét Hauksdóttir – 9 sæti – Berboga U18 kvenna – BFB
- Lóa Margrét Hauksdóttir – 5 sæti – Berboga U18 lið (Nordic Team)
- Lóa Margrét Hauksdóttir – berbogi U18 kvenna (WAN) – 517 stig – Metið var áður 483
Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan
Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons