
Kristjana Rögn Andersen í Skotíþróttafélagi Ísafjarðar endaði í 9 sæti í einstaklingskeppni á ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.
Kristjana endaði í 11 sæti í undankeppni NM ungmenna í berboga kvenna U21 flokki. Í 16 manna úrslitum mætti hún Signe Sogaard frá Danmörku í jöfnum leik. Signe tók fyrstu tvær loturnar og staðan 4-0. Kristjana tók þriðju og fjórðu lotuna og jafnaði leikinn 4-4. Sú Danska tók svo síðustu lotuna og sigurinn 6-4 og sló Kristjönu út sem endaði í 9 sæti í einstaklingskeppni á NM ungmenna.
Niðurstöður af NM ungmenna 2025:
- Kristjana Rögn Anderssen – 9 sæti – Berboga U21 kvenna – SFÍ
Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan
Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons