Kosning um Íþróttafólk ársins í bogfimi 2017 LOKIÐ

Kosning um Íþróttafólk ársins í bogfimi 2017

Kosningu er nú lokið.

Tilnefndar af Bogfiminefnd ÍSÍ í kvennaflokki í stafrófsröð.

Astrid Daxböck:

  • 1x Íslandsmet í einstaklingskeppni
  • 7x Íslandsmet í liðakeppni
  • Íslandsmeistari utanhúss
  • Heimslisti: 109 sæti í trissuboga og 152 sæti í sveigboga.
  • Keppti um Brons í blandaðri liðakeppni á Smáþjóðaleikum
  • 9. sæti á Heimsbikarmóti innanhúss Marrakesh

Astrid Daxböck SJÁ ALLAR NIÐURSTÖÐUR ÁRSINS MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Helga Kolbrún Magnúsdóttir:

  • 2x Íslandsmet í einstaklingskeppni
  • 3x Íslandsmet í liðakeppni
  • Íslandsmeistari utanhúss
  • Heimslisti: 98 sæti í trissuboga
  • Vann Gull í liðakeppni Australian Open
  • Vann Gull í einstaklingskeppni Smáþjóðaleika
  • Vann Brons í blandaðri liðakeppni Smáþjóðaleika.
  • 33. sæti á Heimsmeistarmóti í Mexíkó

Helga Kolbrún Magnúsdóttir SJÁ ALLAR NIÐURSTÖÐUR ÁRSINS MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Kosning um Íþróttafólk ársins í bogfimi 2017

Öllum er frjálst að kjósa. KOSNING NEÐST Á SÍÐU.

Tilnefndir af Bogfiminefnd ÍSÍ í karlaflokki í stafrófsröð.

Guðjón Einarsson:

  • 1x Íslandsmet í einstaklingskeppni
  • 5x Íslandsmet í liðakeppni
  • Íslandsmeistari utanhúss
  • Heimslisti: 180 sæti í trissuboga
  • Keppti um Brons í liðakeppni trissuboga á Smáþjóðaleikum
  • 9.sæti í einstaklingskeppni á European Grand Prix

Guðjón Einarsson SJÁ ALLAR NIÐURSTÖÐUR ÁRSINS MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Guðmundur Örn Guðjónsson:

  • 9x Íslandsmet í liðakeppni
  • Heimslisti: 132 sæti í trissuboga og 241 sæti í sveigboga
  • Vann brons í liðakeppni sveigboga á Smáþjóðaleikum
  • Keppti um Brons í einstaklingskeppni á Smáþjóðaleikum
  • Keppti um Brons í liðakeppni trissuboga á Smáþjóðaleikum

Guðmundur Örn Guðjónsson SJÁ ALLAR NIÐURSTÖÐUR ÁRSINS MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Sigurjón Atli Sigurðsson:

  • 1x Íslandsmet í einstaklingsflokki
  • 2x Íslandsmet í liðakeppni
  • Íslandsmeistari innanhúss og utanhúss
  • Heimslisti: 403 sæti í sveigboga
  • Vann brons í liðakeppni sveigboga á Smáþjóðaleikum
  • Keppti um Brons í blandaðri liðakeppni á Smáþjóðaleikum

Sigurjón Atli Sigurðsson SJÁ ALLAR NIÐURSTÖÐUR ÁRSINS MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Bogfiminefnd ÍSÍ velur þá einstaklinga í kvenna og karla flokki sem hafa náð mestum árangri á árinu.

Almenn kosning er haldin til að ákvarða hvaða einstaklingur er valinn íþróttamaður/kona ársins úr tilnefningum Bogfiminefndarinnar.

Atkvæðum verður haldið leyndu. Niðurstöður kosningar verða gerðar opinberar eftir að niðurstöður eru staðfestar. Ólafur Gíslason Formaður Bogfiminefndar ÍSÍ var valinn til að sjá um kosningu. Val þeirra einstaklinga sem eru hér fyrir ofan var gert af Ólafi í samstarfi við óháða meðlimi bogfiminefndar.

Heildar lista af helstu mótum og niðurstöðum er hægt að finna fyrir neðan hverja manneskju.

Helstu afrek sem tekin eru fram í samantekt:
Íslandsmet í einstaklingsflokki
Íslandsmet í liðakeppni
Íslandsmeistaratitlar
Staða á heimslista
Helstu afrek á alþjóðlegum stórmótum

Kosning hefst 24. Nóvember og lýkur 11. Desember. Úrslit verða birt þegar ÍSÍ hefur staðfest niðurstöðurnar. Ef atkvæði enda jafnt tekur Bogfiminefndin endalega ákvörðun.

Tekið er mið af afrekum frá 1.Nóvember 2016 til 31.Október 2017.