
Júlía Fanney Samúelsdóttir í Íþróttafélginu Akri á Akureyri endaði í 17 sæti í einstaklingskeppni á Norðurlandameistaramóti ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.
Júlía var í 28 sæti í undankeppni mótsins í sveigboga U16 kvenna og mætti í 32 manna úrslitum Amilia Aronsson frá Svíþjóð. Þar sló sú Sænska Júlíu út 6-0 og Júlía endaði því í 17 sæti NUM 2025
Niðurstöður af NM ungmenna 2025:
- Júlía Fanney Samúelsdóttir – 17 sæti – sveigboga U16 kvenna – ÍFA
Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan
Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons