Jóhannes Karl með brons á NM ungmenna

Jóhannes Karl Klein í Bogfimifélaginu Hróa Hetti í Hafnarfirði vann til brons verðlaun í liðakeppni og endaði í 5 sæti í einstaklingskeppni á ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.

Jóhannes var í 5 sæti í undankeppni mótsins í einstaklingskeppni trissuboga karla U21. Jóhannes var sleginn út í 8 manna úrslitum af Ragnari Smára Jónassyni 139-132. Þar sem að Jóhannes var með hæsta skor af þeim sem duttu út í 8 manna úrslitum þá endaði hann í 5 sæti á NM ungmenna 2025

Í liðakeppni tóku Jóhannes og liðsfélagar hans í blönduðu Norðurlandalið (Nordic Team) Natan Eir Skov Jensen og Tiril Havelin Magnæs eftir tap gegn Íslandi 209-175.

Niðurstöður af NM ungmenna 2025:

  • Jóhannes Karl Klein – 5 sæti – Trissuboga U21 karla – BFHH
  • Jóhannes Karl Klein – Brons (3 sæti) –  Trissuboga U21 lið (Nordic team)

Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan

Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons