Jenný Magnúsdóttir Norðurlandameistari og tók auka silfur á NM ungmenna í Svíþjóð

Jenný Magnúsdóttir í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi vann gull í einstaklingskeppni og silfur í liðakeppni á Norðurlandameistaramóti ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.

Jenný mætti Maria Kozak í gull úrslitum í einstaklingskeppni sveigboga kvenna Open U21 á NUM. Þar sem Jenný tók öruggann sigur 6-0 og Norðurlandameistaratitilinn í einstaklingskeppni á NM ungmenna 2025.

Í gull úrslita leik liðakeppni mætti Jenný, ásamt liðsfélögum sínum í Íslenska liðinu Elías Áka Hjaltason og Maria Kozak, sameinuðu Norðurlandaliði. Þar tók sameinaða Norðurlanda liðið öruggann sigur 6-0 Jenný tók því silfrið í liðakeppni ásamt liðsfélögum sínum á NM ungmenna.

Niðurstöður af NM ungmenna 2025:

  • Jenný Magnúsdóttir – Gull (Norðurlandameistari) – sveigboga U21 Open kvenna – BFB
  • Jenný Magnúsdóttir – 2 sæti – Sveigboga U21 Open lið (Ísland)

Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan

Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons