Izaar í 7 sæti á EM

Izaar Arnar Þorsteinsson úr ÍF Akur á Akureyri var að keppa á Evrópumeistaramóti í bogfimi innandyra í vikunni í Plovdiv Búlgaríu.

Í einstaklingskeppni berboga karla stóð Izaar sig ágætlega  í undankeppni EM og endaði í 24 sæti með 473 stig. Aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.

Izaar mætti því 32 manna lokakeppni EM Piotr Kaczmarek frá Póllandi. Sá Pólski átti mjög góðann leik og gaf varla færi á sér með 3 góðar 28 umferðir í leiknum, en Izaar náði stigi í eina skiptið sem Pólverjinn slakaði smá á í annarri umferð. Loka niðurstaða 7-1 fyrir Pólska, Izaar var því slegin út af EM og endaði í 17 sæti.

Í liðakeppni berboga karla endaði Íslenska liðið (Helgi, Izaar og Sölvi) í 7 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki).

Strákarnir voru á endanum slegnir út af EM í 8 liða úrslitum gegn almennt sterkasta liði í heiminum, Ítalíu. Ítalía tók sigurinn örugglega 6-0 og Ísland endaði í 7 sæti á EM. Ísland getur átt umferðir þar sem við getum náð stigum af Ítölunum, og jafnvel með mikilli heppni unnið þá, en ekki að staðaldri og það kom ekki upp í þessu móti.

Izaar hefur lokið keppni á EM innandyra að þessu sinni er gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir 20-21 febrúar næstkomandi. Nokkrir Íslendingar eru að keppa til verðlauna í sínum keppnigreinum á EM, en fjallað verður nánar um það og EM almennt í öðrum fréttum á archery.is og bogfimi.is.