Izaar Arnar kominn aftur á hestinn og endurheimti báða Íslandsmeistaratitlana á ÍM25 um helgina

Izaar Arnar Þorsteinsson endurheimti bæði Íslandsmeistaratitil karla og Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni á Íslandsmeistaramótinu utandyra 2025 sem haldið var um helgina 21-22 júlí í Þorlákshöfn í stormi.

Izaar vann titilinn óháð kyni 2023, tapaði honum 2024 og vann hann svo aftur 2025.

Izaar var með góða sigurröð karla og hafði unnið titlana 4 ári í röð (2020, 2021, 2022 og 2023) tapaði honum svo 2024 og vann hann svo aftur 2025.

Izaar mætti í gull úrslitum karla mætti Izaar liðsfélaga sínum Helga Má Hafþórssyni úr Akri. Izaar tók þar öruggann sigur 6-0. Lota 1 19-15, lota 2 22-14 lota 3 24-14. Gullið í greipum og Íslandsmeistaratitilinn í höfn.

Í gull úrslitum berboga óháð kyni mættust aftur Izaar og Helgi. Helgi tók fyrstu lotuna 27-20 og 2-o forystu. Izaar tók lotu 2 23-18 og jafnaði 2-2. Izaar tók svo lotu 3 og lotu 4 í báðum tilfellum 21-11 og tók sigurinn 6-2 og seinni Íslandsmeistaratitil sinn á ÍM25

Izaar vann einnig silfur á ÍM25 ásamt liðsfélögum sínum Helga og Georg í ÍF Akur í félagsliðakeppni berboga.

Samantekt af árangri Izaars á ÍM25 utandyra: 

  • Íslandsmeistari Berboga (óháð kyni) – Izaar Arnar Þorsteinsson – ÍFA
    • Þriðja árið sem titilinn er veittur og annað sinn sem Izaar vinnur titilin. Only the odd numbers
  • Íslandsmeistari Berboga karla – Izaar Arnar Þorsteinsson – ÍFA
    • Izaar vann fjóra utandyra titla í röð 2020-2024 en tapaði svo 2024 en endurheimti titilinn aftur núna 2025. Let the count recommence!
  • Silfur í Berboga félagsliðakeppni – ÍF Akur
    • Izaar Arnar Þorsteinsson
    • Helgi Már Hafþórsson
    • Georg Rúnar Elfarsson
  • Met fjöldi Íslandsmeistaratitla berboga karla – 10
  • Met fjöldi Íslandsmeistaratitla berboga óháð kyni – 2

Mögulegt er að lesa nánar um Íslandsmeistaramótið í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Íslandsmeistaramótið utandyra byrjaði í ofsaveðri en endaði í blíðu og nýtt þátttökumet á árinu á Íslandsmótum í meistaraflokki