Ísar Logi snýr aftur á EM í 5 sæti liða og 17 sæti einstaklinga með landsliðsmet

Ísar Logi Þorsteinsson úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti U21 í bogfimi innandyra í síðustu viku í Plovdiv Búlgaríu. Ísar snéri aftur eftir rúmlega 2 ára pásu frá íþróttinni, en hann keppti m.a. á EM 2022 og þetta er síðasta ár Ísars í U21 flokki.

Í einstaklingskeppni trissuboga U21 karla endaði Ísar í 20 sæti með skorið 533 í undankeppni EM. Aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.

Ísar mætti því í fyrsta leik 32 manna lokakeppni EM Fabrizio Aloisi frá Ítalíu sem var í 13 sæti í undankeppni EM. Þar átti Ísar ekki sinn besta leik og sá Ítalski átti frábærann og sló Ísar út af EM 147-133. Ísar endaði því í 17 sæti á EM 2026

Í liðakeppni trissuboga karla U21 endaði Íslenska liðið (Magnús, Ragnar og Ísar) í 5 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki).

Strákarnir okkar voru á endanum slegnir út af EM í 8 liða úrslitum gegn Belgíu.  Þar átti Belgía ótrúlega góðann leik gegn Íslandi (hæsta leik sinn á mótinu) með 234 stig á móti óvenju lökum leik frá okkar strákum með 220 stig. En svona er það, efmaður getur átt góða leiki þá verður maður að sætta sig við að geta líka átt laka leiki, jafnvægi í öllu. En strákarnir okkar enduðu í 5 sæti á EM sem er ekki amalegt.

Samantekt af árangri á EM:

  • Undankeppni einstaklinga EM 20 sæti
  • Lokakeppni einstaklinga EM 17 sæti
  • Liðakeppni 5 sæti
    • Ísar Logi Þorsteinsson
    • Magnús Darri Markússon
    • Ragnar Smári Jónasson
  • Trissubogi karla U21 undankeppni landsliðsmet 1670 stig, var áður 1662 stig (einnig besti árangur Íslands í skori í undankeppni EM)
    • Ísar Logi Þorsteinsson
    • Magnús Darri Markússon
    • Ragnar Smári Jónasson

Mögulegt er að finna nánari fréttir um Ísland á EM innandyra í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Ísland í meðal top 5 þjóða í Evrópu