Hjónin með 2 Íslandsmeistaratitla, 2 silfur, 1 brons og Íslandsmet á Íslandsmóti 50+

Hjónin Albert Ólafsson og Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir áttu flott Íslandsmót öldunga í Bogfimisetrinu í dag. Þau tóku 2 af fjórum Íslandsmeistaratitlum öldunga slógu Íslandsmet og tóku 3 önnur verðlaun. Árangurrík helgi á því heimili.

Stutt samantekt af árangri þeirra á Íslandsmóti Öldunga trissuboga 2026:

  • Íslandsmeistari kvenna 50+ Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir
  • Íslandsmeistari félagsliða 50+ BF Boginn
    • Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir
    • Albert Ólafsson
  • Silfur karla 50+ Albert Ólafsson
  • Silfur óháð kyni 50+ Albert Ólafsson
  • Brons óháð kyni 50+ Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir
  • Íslandsmet undankeppni félagsliða trissuboga 50+ BF Boginn 1067 stig, metið var 1065
    • Albert Ólafsson
    • Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir