Henry Snæbjörn Johnston í 7 sæti á NM ungmenna

Henry Snæbjörn Johnston í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi keppti á NM ungmenna utandyra (NUM) í Óðinsvé Danmörku 3-7 júlí.

Í einstaklingskeppni á NM ungmenna sat Henry hjá í 16 manna úrslitum og fór beint í 8 manna úrslit. Í 8 manna úrslitum var Henry svo sleginn út af Sondre Westgård Lund frá Noregi 6-0. Henry endaði því í 7 sæti á NM ungmenna í einstaklingskeppni.

Í liðakeppni voru Henry og liðsfélagar hans Ragnheiður og Dagur slegin út af Norska liðinu í 8 liða úrslitum og enduðu því í 7 sæti í liðakeppni á NM ungmenna.

Samantekt af niðurstöðum Henry á NUM:

  • 7 sæti berboga U16 liðakeppni á NM ungmenna
  • 7 sæti berboga karla U16 einstaklingskeppni á NM ungmenna

Frekari upplýsingar um mótið er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Ísland hér:

Frábært gengi Íslands á NM ungmenna í bogfimi um helgina með 5 Norðurlandameistara, 5 Norðurlandamet o.fl.