Henry Evrópumeistari berboga U21

Henry Johnston úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti U21 í bogfimi innandyra í síðustu viku í Plovdiv Búlgaríu.

Henry var sleginn út af EM í einstaklingskeppni (útsláttarleikjum) berboga karla U21 í 8 manna úrslitum. Þar mættust Henry og Evrópumeistara U21 Viktor Darkhanov frá Rús…. uuuu “Hlutlaus stakur íþróttamaður” (Individual Neutral Athlete – AIN). Viktor tók sigurinn 6-2 og Henry endaði því í 5 sæti á EM 2026.

Gaman er að geta þess að Viktor og Henry lentu einnig á móti hver öðrum á EM 2025 í 8 manna úrslitum í Tyrklandi, þar sem Viktor vann Evrópumeistaratitilinn síðast.

Í liðakeppni berboga karla U21 vann Íslenska liðið (Baldur, Ragnar og Henry) Evrópumeistaratitilinn í liðakeppni og eru “official” Evrópumeistarar. En strákarnir áttu að mæta Búlgaríu í gull úrslitaleiknum, en Búlgaría þurfti að draga sig úr leik vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna og Ísland tók því titilinn.

Samantekt af árangri á EM:

  • Berboga undankeppni einstaklinga EM 6 sæti
  • Berboga lokakeppni einstaklinga EM 5 sæti
  • Berboga Liðakeppni Evrópumeistarar (Gull, 1 sæti)
    • Baldur Freyr Árnason
    • Ragnar Smári Jónasson
    • Henry Johnston

Mögulegt er að finna nánari fréttir um Ísland á EM innandyra í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Ísland í meðal top 5 þjóða í Evrópu