Helgi Már Hafþórsson úr ÍF Akur á Akureyri var að keppa á Evrópumeistaramóti í bogfimi innandyra í vikunni í Plovdiv Búlgaríu. Þetta var fyrsta EM og fyrsta landsliðsverkefni sem Helgi hefur keppt í.
Í einstaklingskeppni berboga karla stóð Helgi sig vel í undankeppni EM og endaði í 20 sæti með 512 stig sem er aðeins 6 stigum frá núverandi Íslandsmeti. Aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.
Helgi mætti því 32 manna lokakeppni EM heimamanni Asen Peychev frá Búlgaríu. Leikurinn var mjög spennandi Asen byrjaði á að taka fyrstu tvær umferðir og tók 4-0 forystu í leiknum. Strákarnir jöfnuðu umferð 3 og staðan 5-1, Helgi þurfti því að vinna síðustu tvær umferðirnar til að knýgja fram bráðabana. Helgi vann umferð 4 með góðri 27 umferð og staðan 5-3, en Asen náði sigrinum í síðustu umferðinni og tók því sigurinn 7-3 og sló Helga út af EM. Helgi endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni á sínu fyrsta EM.
Í blandaðri liðakeppni (hæsti kk+kvk frá hverri þjóð saman í liði, kallast mixed team á ensku) þá endaði Íslenska liðið (Heba og Helgi) í 8 sæti í undankeppni EM með skorið 999. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki).
Í 16 liða úrslitum mættu Heba og Helgi heimaliði Búlgaríu á heimavelli. Leikurinn var jafn en Íslendingar klárlega eylítið sterkari. Íslendingarnir byrjuðu yfir í fyrstu lotu 2-0, Búlgaría tók aðra lotu 2-2 og svo tók Ísland lotu 3 og 4 og tók sigurinn 6-2. Vel gert hjá okkar fólki og skoruðu aldrei undir 30.
Í 8 liða úrslitum mættu Heba og Helgi sterkasta liði í undankeppni EM og almennt sterkustu þjóð í berbogaflokki Ítalíu (Cinzia sem var fjallað um ofar var í liðinu og Simone Barbieri sem vann einnig heimsleikana 2026 og eru bæði margfaldir heims-og Evrópumeistarar). Þar tóku Ítalirnir öruggann sigur 6-0 og slógu Ísland út sem endaði í 8 sæti.
Í liðakeppni berboga karla endaði Íslenska liðið (Helgi, Izaar og Sölvi) í 7 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki).
Strákarnir voru á endanum slegnir út af EM í 8 liða úrslitum gegn almennt sterkasta liði í heiminum, Ítalíu. Ítalía tók sigurinn örugglega 6-0 og Ísland endaði í 7 sæti á EM. Ísland getur átt umferðir þar sem við getum náð stigum af Ítölunum, og jafnvel með mikilli heppni unnið þá, en ekki að staðaldri og það kom ekki upp í þessu móti.
Helgi hefur lokið keppni á EM innandyra að þessu sinni er gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir 20-21 febrúar næstkomandi. Nokkrir Íslendingar eru að keppa til verðlauna í sínum keppnigreinum á EM, en fjallað verður nánar um það og EM almennt í öðrum fréttum á archery.is og bogfimi.is.





