Heba Róberts með silfur á NM ungmenna í Svíþjóð

Heba Róbertsdóttir í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi vann silfur í liðakeppni og endaði 7 sæti í einstaklingskeppni á Norðurlandameistaramóti ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.

Heba var í 4 sæti í undankeppni mótsins í berboga U21 kvenna. Heba sat hjá í 16 manna úrslitum og hélt beint í 8 manna úrslit. Í 8 manna úrslitum mættust Heba og Elin Persson liðsfélagi Hebu frá Svíþjóð. Þar náði Heba sér ekki á strik í leiknum og sú Sænska tók leikinn nokkuð örugglega 7-1. Heba endaði því í 7 sæti í einstaklingskeppni á NM ungmenna 2025

Í liðakeppni mættu Heba og liðsfélagar hennar, í blönduðu Norðurlandalið (Nordic Team) Elin Persson og Mina Askestad, Danmörku í undanúrslitum. Þar tóku Heba og liðsfélagar hennar öruggann sigur 6-2 og héldu í gull úrslitin.

Í gull úrslitaleiknum mættu Heba og liðsfélagar Svíþjóð. Þar sem Svíjar tóku öruggann 6-0 sigur (enda ein sterkasta þjóð í heiminum í berboga) og Heba og liðsfélagar tóku silfrið á NM ungmenna 2025 í liðakeppni.

Niðurstöður af NM ungmenna 2025:

  • Heba Róbertsdóttir – 7 sæti – Berboga U21 kvenna – BFB
  • Heba Róbertsdóttir – Silfur (2 sæti) – Berboga U21 lið (Nordic Team)

Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan

Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons