Heba í 7 sæti á EM með landsliðsmet

Heba Róbertsdóttir úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti í bogfimi innandyra í vikunni í Plovdiv Búlgaríu.

Í einstaklingskeppni berboga kvenna stóð Heba sig vel í undankeppni EM og endaði í 19 sæti með 487 stig, en aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.

Heba mætti því 32 manna lokakeppni EM Florentina Bacin frá Rúmeníu. Leikurinn var æsi spennandi og gæti ekki hafað verið jafnari. Sú Rúmenska byrjaði á því að taka fyrstu tvær loturnar af öryggi og tók 4-0 forystu í leiknum. Heba mátti ekki tapa umferð frá og með þeim punkti og varð ekki til vonbrigða þar sem Heba vann næstu tvær umferðir og jafnaði leikinn 4-4 og stelpurnar jöfnuðu svo síðustu umferðina. Þar sem leikurinn endaði í jafntefli þurfti bráðabana til þess að ákvarða sigurvegara, ein ör hærra skor vinnur. Báðar stelpur skutu 8 og voru aftur jafnar og því þurfti að mæla hvor þeirra hitti örinni nær miðju og það var okkar Heba sem tók sigurinn 6-5 (1 stig fyrir bráðabana) og hélt áfram í 16 manna úrslit.

Í 16 manna úrslitum mætti Heba óheppilega bestu berboga konu í heiminum Cinzia Noziglia frá Ítalíu. Cinzia vann síðustu tvo heimsleika (World Games sem eru “Ólympíuleikar” íþróttagreina og keppnisgreina sem eru ekki á Ólympíuleikum) og er samtals 9 faldur heimsmeistari og 11 faldur Evrópumeistari á síðasta áratug, og var að sjálfsögðu efst í undankeppni EM innandyra að þessu sinni. Cinzia vann leikinn örugglega 6-0 og sló Hebu út af EM og Heba endaði því í 9 sæti á EM 2026.

Í blandaðri liðakeppni (hæsti kk+kvk frá hverri þjóð saman í liði, kallast mixed team á ensku) þá endaði Íslenska liðið (Heba og Helgi) í 8 sæti í undankeppni EM með skorið 999. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki).

Í 16 liða úrslitum mættu Heba og Helgi heimaliði Búlgaríu á heimavelli. Leikurinn var jafn en Íslendingar klárlega eylítið sterkari. Íslendingarnir byrjuðu yfir í fyrstu lotu 2-0, Búlgaría tók aðra lotu 2-2 og svo tók Ísland lotu 3 og 4 og tók sigurinn 6-2. Vel gert hjá okkar fólki og skoruðu aldrei undir 30.

Í 8 liða úrslitum mættu Heba og Helgi sterkasta liði í undankeppni EM og almennt sterkustu þjóð í berbogaflokki Ítalíu (Cinzia sem var fjallað um ofar var í liðinu og Simone Barbieri sem vann einnig heimsleikana 2026 og eru bæði margfaldir heims-og Evrópumeistarar). Þar tóku Ítalirnir öruggann sigur 6-0 og slógu Ísland út sem endaði í 8 sæti.

Í liðakeppni berboga kvenna endaði Heba ásamt liðsfélögum í Íslenska liðinu í 7 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki). Stelpurnar slógu einnig Íslandsmetið í undankeppni berboga kvenna landsliða kvenna innandyra með undankeppnisskor upp á 1320 stig vs 1250 sem metið var áður.

Stelpurnar voru svo slegnar út í 8 liða úrslitum á móti Bretlandi. Bretland tók fyrstu umferðina og Ísland aðra og staðan 2-2. Bretland tók þriðju umferðina og staðan 4-2, á síðustu örinni í fjórðu og síðustu umferðinni þurfti Ísland 7 eða hærra til að vinna lotuna, jafna leikinn 4-4 og knýja fram bráðabana, svo var þó ekki að þessu sinni og síðasta örin endaði rétt fyrir utan skífuna. Bretland tók því sigurinn og hélt áfram í undanúrslit og okkar stelpur enduðu í 7 sæti. Súrt að komast ekki aftur í topp fjóra en liðið tók brons á EM í fyrra og endaði í 4 sæti 2022.

Heba hefur lokið keppni á EM innandyra að þessu sinni er gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir 20-21 febrúar næstkomandi. Nokkrir Íslendingar eru að keppa til verðlauna í sínum keppnigreinum á EM, en fjallað verður nánar um það og EM almennt í öðrum fréttum á archery.is og bogfimi.is.