
Biðin er á enda sunnudaginn 22 júlí á Íslandsmeistaramótinu utandyra sem haldið var í Þorlákshöfn. Landaði Haukur Hallsteinsson í Langbogafélaginu Freyju “silfur drengurinn” loksins að gullinu og Íslandsmeistaratitli einstaklinga í langboga eftir langa bið.
- ÍM 2023 innandyra – silfur
- ÍM 2024 innandyra (óháð kyni) – silfur
- ÍM 2024 innandyra karla – 4 sæti
- ÍM 2024 (komst ekki á mótið)
- ÍM 2025 innandyra (óháð kyni) – silfur
- ÍM 2025 innandyra karla – silfur
- ÍM 2025 utandyra (óháð kyni) – silfur
- ÍM 2025 utandyra karla – Official Íslandsmeistari!!!!
Það mátti þó ekki miklu muna í úrslitaleiknum á ÍM25 á sunnudaginn, þar sem að Haukur mætti Gumma Guðjóns í úrslitaleik karla á Íslandsmeistaramótinu. Gummi byrjaði leikinn 2-0 yfir, Haukur jafnaði 2-2, Gummi tók næstu lotu 4-2, Haukur tók fjórðu lotuna 4-4 og aðeins ein lota eftir. Í síðustu lotunni skoraði Gummi 23 stig, Haukur var með 14 stig og þurfti 9 til að jafna lotuna og knýja fram bráðabana eða 10 til að sigra. Ekki auðvelt þar sem að meðal skorið þeirra var 7,3 í leiknum upp að þeim punkti. En Haukur náði því, 9 stig, jafnaði lotuna og þeir deildu því stigunum 5-5, jafntefli og bráðabani myndi ráða úrslitum. Ein ör nær miðju vinnur. Haukur tók öruggann sigur í bráðabananum 9-4 og sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil einstaklinga.
Þetta var þó ekki fyrsti Íslandsmeistaratitil Hauks þar sem að hann vann Íslandsmeistaratitlana í félagsliðakeppni ásamt liðsfélögum sínum 2025 bæði innnadyra og utandyra. En einstaklings titlarnir eru alltaf sætastir á bragðið.
Haukur Hallsteinsson LFF sló metið í langboga karla með 491 stig á Íslandsbikarmóti síðustu helgi og Haukur sló metið svo aftur á ÍM25 á sunnudaginn með 529 stig.
Haukur setti einnig Íslandsmetið í félagsliðakeppni ásamt liðsfélögum sínum í Langbogafélaginu Freyju á mótinu og þau tóku Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni líka.
Haukur tók einnig silfrið í keppni óháð kyni, silfur drengurinn verður að taka eitt til að halda nafninu.
2 Íslandsmeistaratitlar, 1 silfur og Íslandsmet í liða og einstaklingskeppni, varla hægt að gera betur en það.
Samantekt af árangri Hauks á ÍM25 utandyra:
- Íslandsmeistari – Langboga karla – Haukur Hallsteinsson – LFF
- Fyrsti formlegi titill í longbow/traditional utandyra og fyrsti einstaklings titill Hauks. Hulk smash.
- Silfur – Langboga (óháð kyni) – Haukur Hallsteinsson – LFF
- Íslandsmeistari – Langboga – LF Freyja – Fyrsti titilinn utandyra
- Tinna Guðbjartsdóttir
- Guðrún Þórðardóttir
- Haukur Hallsteinsson
- LF Freyja – Íslandsmet Langboga undankeppni félagsliðakeppni – 1069 stig
- Tinna Guðbjartsdóttir
- Guðrún Þórðardóttir
- Haukur Hallsteinsson
- Haukur Hallsteinsson LFF – Íslandsmet Langboga karla – 529 stig (metið var áður 491 stig)
Mögulegt er að lesa nánar um Íslandsmeistaramótið í frétt Bogfimisambands Íslands hér: