Halla Sól Þorbjörnsdóttir Norðurlandameistari með tvö Norðurlandamet

Halla Sól Þorbjörnsdóttir í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi keppti á NM ungmenna utandyra (NUM) í Óðinsvé Danmörku 3-7 júlí með mjög góðu gengi.

Halla var efst í undankeppni einstaklinga á NM ungmenna í sínum flokki. Í útsláttarkeppni einstaklinga á NM vann Halla sig auðveldlega upp í gull úrslitaleikinn þar sem hún mætti Emelie Brun frá Danmörku. Þar tók Halla sigurinn 6-4 í spennandi og jöfnum leik.

Íslenska liðið sem Halla var partur af var einnig efst í undankeppni NM og setti því Norðurlandametið þar sem að sveigbogi U21 Open er nýr flokkur á NM ungmenna. Liðið komst í gull úrslitaleikinn en stelpurnar okkar töpuðu gull úrslitaleiknum 6-0 og Halla tók því silfrið í liðakeppni ásamt liðsfélögum sínum.

Stutt einföld samantekt af árangri Höllu á þessum tveim vikum:

  • Norðurlandameistari einstaklingskeppni
  • 2 Norðurlandamet
  • 1 Íslandsmet
  • 1 Silfur í liðakeppni á NM ungmenna

Niðurstöður af NM ungmenna:

  • 1 sæti sveigboga U21 Open kvenna einstaklingskeppni
  • 2 sæti sveigboga U21 Open liðakeppni

Norðurlandamet á NM ungmenna:

  • Halla Sól Þorbjörnsdóttir BFB – Sveigbogi kvenna U21 Open 499 stig. Metið var áður 0 (nýr flokkur)
  • Sveigbogi U21 Open liðakeppni 1248 stig. Metið var áður 0 stig (nýr flokkur)
    • Halla Sól Þorbjörnsdóttir BFB
    • Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir BFB
    • Stella Wedholm Albertsdóttir BFB

Íslandsmet á NM ungmenna:

  • Sveigboga U21 Open NUM landsliðsmet – 1248 stig
    • Halla Sól Þorbjörnsdóttir BFB
    • Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir BFB
    • Stella Wedholm Albertsdóttir BFB

Frekari upplýsingar um mótið er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Ísland hér:

Frábært gengi Íslands á NM ungmenna í bogfimi um helgina með 5 Norðurlandameistara, 5 Norðurlandamet o.fl.