
Guðbjörg Reynisdóttir vann brons verðlaun í berboga kvenna liðakeppni á Evrópumeistaramótinu innandyra 2025 í Samsun Tyrklandi 17-23 febrúar. Þetta eru fyrstu verðlaun Guðbjargar á EM en hún hafði tvisvar áður keppt í úrslitaleik um bronsið.
Berboga kvenna liðið tók bronsið í meistaraflokki á EM gegn heimaþjóðinni Tyrklandi, í einum mest spennandi úrslitaleik sem Ísland hefur nokkurtíma átt. Brons úrslita leikurinn byrjaði 4-0 yfir fyrir Íslandi, en Tyrkir náðu að jafna leikinn 4-4 og knýja fram bráðabana um sigur.
Bráðabaninn endaði svo líka í jafntefli 21-21 og því þurfti að mæla hvort liðið ætti örina sem væri nær miðju til þess að ákvarða sigurvegara leiksins. Það getur ekki verið jafnari leikur en það. Þar sem Íslensku stelpurnar voru með örina sem var næst miðju í jöfnum bráðabana þá sigruðu þær og Íslenska liðið tók því bronsið á EM í berboga kvenna.
Í bráðabananum var Guðbjörg síðust í röðinni. Hún þurfti að skjóta 10 á síðustu örinni til að sigra, 9 til að jafna bráðabanann og hún skaut 9 sem var betri en sú sem Tyrkland hafði skorað sem tryggði Íslandi sigurinn.
Glæsilegt hjá stelpunum að taka sigur gegn Tyrklandi á heimavelli í einni flottustu bogfimi þjóðarhöll sem fyrir finnst í Evrópu.
Ítalía vann titilinn í liðakeppni í gull úrslitaleiknum við Rúmeníu 5-1
Brons berbogi kvenna lið m.fl.
Liðsmenn:
- Guðbjörg Reynisdóttir – BF Hrói Höttur Hafnarfirði
- Valgerður E. Hjaltested – BF Boginn Kópavogur
- Astrid Daxböck – BF Boginn Kópavogur
Guðbjörg Reynisdóttir endaði í 9 sæti berboga kvenna einstaklinga eftir að vera slegin út af slegin út í 16 manna úrslitum af Maria Mogos frá Rúmeníu. Guðbjörg hefur komist í 8 manna úrslit síðustu tvö EM (2022 í Slóveníu og 2024 í Króatíu). Á EM í Króatíu keppti Guðbjörg einnig um brons með Íslenska liðinu á móti Serbíu, en þar tapaði liðið brons leiknum 6-0. Á EM í víðavangsbogfimi 2019 komst Guðbjörg í brons úrslitaleik berboga kvenna U21 en þar tók sú Breska sigurinn.
Guðbjörg var mjög súr með frammistöðu sína í undankeppni og útsláttarkeppni einstaklinga á EM25. En enginn vafi er á því að hún er gífurlega ánægð núna með brons verðlaunin með liðinu, sem voru mjög óvænt þar sem Tyrkneska liðið var talið sigurstranglegra í leiknum. Þetta eru fyrstu verðlaun á EM sem Ísland hefur unnið í berboga meistaraflokki í sögu íþróttarinnar. Er hægt að vera ósáttur við það.
Nánari upplýsingar um EM 2025 er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér: