
Guðbjörg Reynisdóttir vann áttunda Íslandsmeistaratitil sinn í berboga kvenna í röð utandyra á Íslandsmeistaramótinu í Þorlákshöfn um helgina.
Guðbjörg mætti Hebu Róbertsdóttir úr BF Boganum í gull úrslitum kvenna. Þar sem Guðbjörg vann óvænt öruggann sigur 6-0 í vondu veðri og tók áttunda Íslandsmeistaratitil sinn í röð utandyra.
Guðbjörg hefur unnið alla Íslandsmeistaratitla berboga kvenna innandyra og utandyra frá árinu 2018, nema 2023 innandyra þar sem Heba vann titillinn. En báðar stelpurnar eru á háu stigi í íþróttinni. Heba vann einstaklings brons á EM U21 2025 og varð Evrópubikarmeistari 2025, Guðbjörg var í 9 sæti í meistaraflokki á EM og vann brons í liðakeppni á EM. Þannig að samkeppnin er sterk í þessum flokki.
Guðbjörg keppti einnig í brons úrslitaleik óháð kyni þar sem hún mætti aftur Hebu. Þar var leikurinn þó mun jafnari, Heba tók fyrstu lotuna 12-9 og staðan 2-0, stelpurnar jöfnuð lotu 2 18-18 og skiptu stigunum og staðan 3-1. Guðbjörg tók þriðju og fjórðu lotuna 25-20 og 16-12 og staðan 5-3. Stelpurnar jöfnuðu svo síðustu lotuna 18-18 og skiptu stigunum því og Guðbjörg tók því sigurinn naumlega 6-4
Samantekt af árangri Guðbjargar á ÍM25 utandyra:
- Íslandsmeistari Berboga kvenna – Guðbjörg Reynisdóttir – BFHH
- Áttundi utandyra titill Guðbjargar í röð 2018-2025. Unstoppable!
- Brons Berboga (óháð kyni) – Guðbjörg Reynisdóttir
Mögulegt er að lesa nánar um Íslandsmeistaramótið í frétt Bogfimisambands Íslands hér: