Guðbjörg í 7 sæti á EM með landsliðsmet

Guðbjörg Reynisdóttir úr BF Hróa Hetti í Hafnarfirði var að keppa á Evrópumeistaramóti í bogfimi innandyra í vikunni í Plovdiv Búlgaríu.

Í einstaklingskeppni berboga kvenna stóð Guðbjörg sig vel í undankeppni EM og var lengi vel í topp tíu, en slakaði svo niður síðari part undakeppninnar og endaði í 19 sæti með 479 stig, en aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.

Guðbjörg mætti því 32 manna lokakeppni EM Ingrid Tarnocki frá Serbíu. Leikurinn var nokkuð jafn en Guðbjörg náði góðum sigri 7-3 og komst áfram í 16 manna úrslit.

Í 16 manna úrslitum mætti Guðbjörg Elisa Medico frá Ítalíu þar sem leikurinn var nokkuð jafn en stigin í umferðunum röðuðust ekki Guðbjörgu í vil og sú Ítalska tók því sigurinn og hélt í 8 manna úrslit og Guðbjörg endaði því í 9 sæti á EM.

Í liðakeppni berboga kvenna endaði Guðbjörg ásamt liðsfélögum í Íslenska liðinu í 7 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki).

Stelpurnar voru svo slegnar út í 8 liða úrslitum á móti Bretlandi. Bretland tók fyrstu umferðina og Ísland aðra og staðan 2-2. Bretland tók þriðju umferðina og staðan 4-2, á síðustu örinni í fjórðu og síðustu umferðinni þurfti Ísland 7 eða hærra til að vinna lotuna, jafna leikinn 4-4 og knýja fram bráðabana, svo var þó ekki að þessu sinni og síðasta örin endaði rétt fyrir utan skífuna. Bretland tók því sigurinn og hélt áfram í undanúrslit og okkar stelpur enduðu í 7 sæti. Súrt að komast ekki aftur í topp fjóra en liðið tók brons á EM í fyrra og endaði í 4 sæti 2022.

Guðbjörg hefur lokið keppni á EM innandyra að þessu sinni er gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir 20-21 febrúar næstkomandi. Nokkrir Íslendingar eru að keppa til verðlauna í sínum keppnigreinum á EM, en fjallað verður nánar um það og EM almennt í öðrum fréttum á archery.is og bogfimi.is.