Bikarmótið var fyrsta mót í heiminum í World Series Open mótaröðinni á vegum heimssambandsins. Úrslit í World Series Open munu ráðast af þremur hæstu skorum keppenda á mótum á tímabilinu og mögulegt verður að fylgjast með stöðu keppenda á WorldArchery.org
Guðbjörg, Marín og Alfreð unnu bikarana í sínum greinum í kynlausri keppni á þriðja Bikarmóti BFSÍ 5 nóvember.
Eftir að útsláttarkeppni var lokið voru lokaniðurstöður gull úrslita leikja eftirfarandi:
- Guðbjörg Reynisdóttir vann bikarinn í berboga 7-1 í úrslitum gegn Birnu Magnúsdóttur
- Alfreð Birgisson vann bikarinn í trissuboga 141-140 í úrslita leik gegn Freyju Dís Benediktsdóttir
- Marín Aníta Hilmarsdóttir vann bikarinn í sveigboga 6-0 í úrslita leik gegn Mána Gautason
Staðan í Bikarmótaröðinni byggist á niðurstöðum úr undankeppni Bikarmótana. Top 3 staðan í Bikarmótaröðinni er í dag:
Sveigbogi:
- Valgerður E. Hjaltested : 1572
- Marín Aníta Hilmarsdóttir : 553
- Astrid Daxböck : 513
Trissubogi:
- Freyja Dís Benediktsdóttir : 1671
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir : 1565
- Ragnar Smári Jónasson : 1080
Berbogi:
- Heba Róbertsdóttir : 1091
- Sölvi Óskarsson : 1058
- Guðbjörg Reynisdóttir : 895
Heildar stöðuna í Bikarmótaröðinni er hægt að finna á úrslitasíðu hvers móts á ianseo.net í skjali sem heitir “Staða Bikarmótaröð BFSÍ “
Næsta mót í bikarmótaröðinni verður haldið 26 nóvember og það er en mögulegt að skrá sig á það hér.
Áhugavert sem gerðist á mótinu: Ragnar Smári Jónasson kom öllum og sjálfum sér á óvart og sýndi sterka frammistöðu á mótinu. Síðast umferð trissuboga gull úrslita var mjög spennandi en Freyja var einu stigi yfir og útlit fyrir að hún myndi tryggja sér þriðja bikarinn í röð í Bikarmótaröðinni, en staðan snérist við í síðasta umferðinni og Alfreð náði sigrinum með 1 stigi. Sem er í fyrsta sinn sem karlmaður vinnur sigur á bikarmóti í kynlausum flokki.
Þátttaka á bikarmótaröðinni hefur verið að aukast með hverju móti, og var þátttaka mest á þessu móti hingað til.